Gömul bréf heim

var að taka til og sá að ég hafði geym á WORD bréfin eða ímeilin sem að ég sendi heim fyrstu vikurnar mínar í London! Skelli þeim hérna snöggvast inn! Það var svo sjúklega gaman hjá mér fyrstu vikurnar eins og lesa má!

 

Jæja kæru vinir…..Þá er vika nr 2 hjá mér.....púff hvað tíminn líður hratt. Helgin var svona helvíti fín.....ég var ein heima og eldaði mér pasta og drakk hvítvín og slatta af bjórum....síðan tók ég til á laugardaginn og gerði fínt í húsinu fyrir stelpurnar sem voru í vín-og sígarettuinnkaupum í frakklandi fyrir okkur hinar. Laugardagskvöldið fór síðan bara í að slappa af og drekka franskt rauðvín í rólegheitunum og borða franska osta og brauð.....mmmmmmmm nammi namm....

í gær ákvað Sigríður að vera ferlega dugleg og elda KJÚKLING.....púff, eins og ég er hrædd við að elda kjúkling þá ætlaði ég að elda rétt sem ég hafði aldrei eldað áður....reyndar þá hafði ég ætlað mér að experimenta aðeins og elda bara ofan í mig, en það endaði með því að ég var að elda ofan í okkur 6 samtals: mig, Kristrúnu, Önnu Heiðu og nýja og rosalega skemmtilega kærasta hennar, Darren, Rebekkku og vinkonu hennar Ísgerði .......nema hvað að þetta tókst svona helvíti vel (eldaði kjúkling með heilum hvítlauk, lauk, sætum karteflum, karteflum, avacado, gulrótum og lauk) ohh, ég er svooooooooo stolt af mér.... Nema hvað að við urðum náttúrulega að prófa líka hvítvínið sem að stelpurnar komu með, og þegar 5 flöskur voru tómar þá var komið að ódýra franska bjórnum og síðan skelltum við okkur í karókí.....en því miður þá fékk ég ekki að syngja neitt.....við komum alltof seint og það var ekki neitt pláss fyrir mína einstöku hæfileika....en ég náði nú samt að snogga einn skota..... he he... hvernig er það, eruð þið enn að jafna ykkur á ósigrinum???? En jæja, hálftími eftir og ég hlakka svo til að komast heim til að fá mér lúr.....

Vika 3Halló halló halló halló halló allir saman....hér kemur þetta vikulega frá mér  - svolítið seinna en vanalega því að ég hafði akkúrat engan tíma á mánudaginn eða í gær til að skrifa því að við vorum allt of seinar því að bensíninngjöfinn á honum blámanni, bílnum hennar Kristrúnar, gafst upp á mánudagsmorguninn og við þurftum að taka lestina í vinnunna. Lestarkerfið var allt í rugli þennana morguninn og við komum hingað í Banstead ekki fyrr en rétt fyrir tíu! Púff....en sem betur fer var þetta eitthvað sem var hægt að laga og Darren, sem er kærasti Önnu Heiðu og algjört GULL - reddaði varahlutnum fyrir okkur og lagaði þetta í gær. vííííííí!Annars er allt að ganga sinn vanagang hérna... það er farið að dimma alveg helvíti snemma, strax uppúr 5 er farið að rökkva og það er svo skrýtið því að það er enn allt svo grænt hérna  - þetta einhvernveginn passar ekki  - en það er enn mjög bjart þegar við vöknum uppúr 7 á morgnana, sem er náttúrulega alveg brill.Helgin var alveg ferlega fín. Við skelltum okkur í bíó á föstudagskvöldið og tókum því rólega því það var búið að ákveða að fara á ástralskan pöbb í Croydon á laugardagskvöldið sem er svona fínn "Gaukur á Stöng" með lifandi tónlist og alveg ofboðslega mikið af sætum strákum ... he he he - það var alveg helvíti gaman og ódýrt þvi að Darren og vinur hans borguðu undir leigubílinn og inn á staðinn + drykki á barnum.....oh, hvað ég elska breska herramenn!En jæja, síðan fór sunnudagurinn í það að jafna sig eftir öll hallærisdanssporin og æfingarnar á laugardagsmorguninn...... og engar dónalegar hugsanir takk.....þetta kemur kynlífi ekkert við! Haldiði ekki að ég hafi skellt mér út að skokka á laugardagsmorgun og gerði brjálaðar æfingar í framhaldinu af því......tók sko VEL á því og að launum uppskar ég brjálaðar harðsperrur....en ég var audda líka alveg ferlega stolt af mér!En jæja, hádegishléið mitt er búið í bili, ég ætlaði að segja ykkur eitthvað meir en það verður að bíða betri tíma.4/11Hananú! Barasta kominn nóvember.... mikið er tíminn fljótur að líða, mér finnst eins og að ég hafi komið hingað í gær - svo er maður svo tímavilltur því að hér er enn allt grænt og bara haustlegt en ekki vetrarlegt eins og á Íslandi, þ.e. á norðurlandinu allaveganna! Í gær var ég í sólbaði úti í garði - þó ég geti nú ekki sagt að ég hafi náð einhverjum geðveikum lit, þá var það geggjað að sitja í sólinni með kaffibollann minn og ristaða brauðið.Á föstudaginn var, var svona vinnupartí sem er víst alltaf í lok hvers mánaðar eða "in the end of the month drinks".

Við fórum á ferlega notalegan og sætan en frekar snobbaðan pöbb í Epsom. Þar var okkur næstum hent út fyrir hávaða og læti.....he he nú ýki ég.

Málið var það að hún Sigga litla fékk smá hláturskast og smitaði náttúrulega alla af því og meðan mestu hlátrasköllin ómuðu um salinn kom einn dyravörðurinn og sagði að ef að við myndum ekki lækka í okkur yrðu þeir að biðja okkur um að fara. Allir kenndu mér náttúrulega um þetta en fannst þetta auðvitað algerlega fáránlegt og Rebekka rúntaði um pöbbinn og spurði fólk hvort við værum að bögga þau með hlátraskellunum í okkur... en svo reyndar kom það í ljós að það voru blístrin í henni Rebekku (hún var eitthvað að sýna öllum hvað hún væri dugleg að blístra) sem fóru í taugarnar á framkvæmdastjóranum þarna.... jæja, hann fékk nú samt að heyra það frá okkur og við förum sko ekki þangað í bráð. Þetta endaði allt vel og ég reyndi við einn barþjóninn og fékk númerið hjá honum áður en ég fór heim.....he he.... já, ég hugsa að ég fari ekki þangað aftur ALVEG á NÆSTUNNI!

he hejá og.....var næstum búin að gleyma að ég er komin með enskt gemsanúmer sem er:00 44(0)795 211 4588já og meira p.s...... LINDA! Ég fékk bréfið sem að ég sendi þér ENDURSENT! Ótrúlegt með þessi bréfaskipti okkar - ég held að þetta sé í 4. skiptið sem að bréf frá mér kemst ekki til skila....en jæja...þú mátt alveg láta mig vita aftur heimilisfangið svo ég geti séð hvað klikkaði hjá mér! En jæja, verð að hlaupa......og fara að kaupa......og botniði nú! 13/11Mikið flýgur tíminn hratt - nóvember næstum hálfnaður og jólaskreytingar farnar að sjást á pöbbunum og örugglega ekki langt í það að verður ekki hægt að hlusta á útvarpið lengur fyrir leiðinda jólalögum....jú jú ég er alltaf jafn hrifin af þessum blessuðum jólaæsingi - eða þannig!Er með hauskvef og hálsbólgu - ekki gott! Held að ástæðan sé helst sú að í innflutningspartíinu á laugardagskvöldið var þá hékk ég úti að reykja mest allt kvöldið í flegnum bol og í pilsi - alltaf sumar hjá mér sjáiði til. En já, þetta var helvíti skemmtilegt partý. Við bjuggumst fyrst við ca 45 manns - en ca 30 mættu - og það var alveg nóg.

Við vorum sérlega íslenskar og buðum upp á íslenskt brennivín og hákarl sem að hún Andrea vinkona færði okkur (brennivínið fengum við í innflutningsgjöf og Hákarlinn kom frá foreldrum hennar Önnu Heiðu sem er einmitt frá Drangsnesi) og já, viðbrögðin við þessu tvennu voru mjög skemmtileg - einhverjir þurftu að glíma lengi við ógleðina eftir hákarlinn og aðrir gáfust upp og hræktu hákarlinum út úr sér! Þvílík synd...uhm... hann var svoooooooo góður.

En já, þetta var fjörugt partí og við fengum slatta af innflutningsgjöfum, þ.á.m. klósettrúllu með útvarpi (alltaf gott að hlusta á útvarpið þegar maður er að skí.....) pictionary, blóm og fullt af ilmkertum (mætti halda að við værum eitthvað illa lyktandi.....hverjum finnst áfengislykt vond?????)En jæja, klukkan 2 mín. í 5 og orðið dimmt úti og við að fara heim í fína húsið okkar í Norbury. Erum með matarboð fyrir Darrenn og Önnu Heiðu í kvöld því að Darren átti afmæli í gær....ætli við eldum ekki handa honum/okkur tikka masala kjúkling með nan brauðum og alles....nammi nammi nammi... 20/11Púff - eitt skal ég segja ykkur að það er ekki tekið út með sældinni að vera útlendingur í Englandi. Það er ekki hægt að opna bankareikning nema að maður geti sannað heimilisfangið sitt. Til að sanna heimilsfangið þá þarf maður að fara með reikninga í bankann sem eru á þínu nafni og með þína addressu - þannig að...ég fór að vinna í því að sanna heimilsfangið og ætlaði að skrifa mig fyrir símalínunni og láta opna símann heima á Ederline AV.....nei nei - það gékk ekki upp því að ég þarf að hafa búið í Englandi í það minnsta 2 ár til þess að sleppa við að borga 200 punda (ca 30þús kall) tryggingu auk þess sem að ég þarf að "sanna" heimilsfangið mitt!!! ARG!!! Það er heldur ekki hægt að leigja spólu nema að maður hafi a.m.k. tvö skírteini sem eru með addressunni manns á!!!) 

Og svo þarf maður að skrá sig hjá lækni - og fyrst þarf maður að fara og skrá sig á heilsugæslustöðina og fylla út umsókn o.s.frv. Síðan þarf maður að fá tíma hjá hjúkrunarkonu og fara með hland í glasi til hennar. Því næst fær maður tíma hjá lækninum sjálfum sem skoðar mann og tékkar á manni - og því næst fær maður að vita hvort að læknirinn vilji mann eða ekki.

Heilbrigðiskerfið er þannig að það kostar ekkert að fara til læknis - ríkið borgar þeim ákveðna upphæð fyrir hvern sjúkling sem að þeir fá og þar af leiðandi vilja læknarnir auðvitað bara fá heilbrigða og unga einstaklinga ... en sumsé - þessi process tekur a.m.k. 3 vikur og ef að læknirinn hafnar manni þá þarf maður eflaust að ganga í gegnum þetta allt saman aftur! púff

Ekki það að það er álíka mikið vesen að skrá sig hjá heimilslækni heima.... aldrei nennti ég að standa í því!!!Blah!Jæja - vildi bara aðeins tjá mig um þetta - ekki alltaf dans á rósum sjáið til!Annars er það að frétta að ég lá í rúminu allan laugardaginn - vaknaði kl. 10 um morgunin með stokkbólginn ökkla og gat mig varla hreyft. Ég hrundi í gangstéttina á föstudagsnóttina - ég held að ökklinn hafi hreinlega gefið sig eftir að hafa verið á háhæluðum skóm allan daginn, labbað fullt og dansað o.s.frv. ..... það sem að maður leggur ekki á sig fyrir gellu lúkkið! - en jæja, ég var farin að stíga í fótinn á sunnudaginn og í gær fór ég út að skokka eftir vinnu þannig að nú er allt í gúdden!Og svo er ég að fara í bíó í kvöld með vinnunni - við erum að fara á James Bond - fön fön fön ... elska bond, jeims bond ... Annars held ég að ég sé búin að hlaupa af mér hornin í bili og fari nú að slappa aðeins af - no more karókí singing á sunnudagskvöldum  o.s.frv. ... er líka búin að bæta á mig nokkrum kílóum síðan ég kom þannig að ég þarf að taka mig á í matarræðinu og hætta að drekka bjór í tíma og ótíma .... wish me luck guys! 25/11Slæmu fréttirnar eru þær að ég týndi símanum mínum á föstudaginn var og vildi bara láta ykkur vit að ef að þið hafið verið að fá skrítin sms frá mér síðan þá - já, þá eru þau ekki frá mér! Sá sem er með símann minn hefur verið að leika sér að senda öllum í símaskránni minni misskemmtileg sms.... bastards! Því miður gat ég ekki lokað símanum fyrr en í morgun en ég átti bara 1000 króna inneign þannig að tapið var því mest tilfinningalegt..... númerið hjá gæjanum sem að ég VAR að deita var í símanum og nú get ég því miður ekki haft upp á honum!!! púff - jæja, gott er að það er nóg af fiskum í sjónum....og já....því miður var veskið mitt með símanum..... þannig að nú á Sigga ekkert visakort og ekkert debetkort og ekkert ökuskírteini!!! dem!Góðu fréttirnar eru þær að þið getið náð í mig - ef nauðsyn ber til hér í vinnunni á milli 9-17:00 alla virka daga - og nú get ég ekki lengur notað visakortið mitt - sem er nú bara allt í læ - ég er ekki mjög góð í því að spara þegar ég á visakort -  og ég fæ útborgað á föstudaginn kemur :-)Sumsé - allt í þessu fína stína,ég er bara soldi bissí krissí - sumarbæklingurinn kom út í síðustu viku og nú er sko ballið byrjað....púff.... en já góðir íslendingar Mæjónesan er orðin gul og Bára er lögst í bleyti...best að hætta þessu rugli í bili...  05/12la la la - allir eflaust farnir að syngja jólalögin lon og don. Hérna megin reyndar líka! Anna Heiða fékk sendan disk með íslenskum jólalögum sem við hlustuðum á hér í vinnunni í gær.....rosa stuð sko!Annars er það helst að frétta að ég er komin með nýjan síma og nýtt símanúmer.....púff, fór sko alveg með fjárhaginn þennan mánuðinn. En já, nýja símanúmerið mitt er:00 44 7986 98 97 75 breytið þessu snöggvast í símanum ykkar.....common....þið eruð ekki að missa af neinu, sjálfseyðileggingarbúnaðurinn sem að ég pantaði um daginn frá M16 er ekki enn kominn í gagnið.....En já, við stúlkurnar munum fá nýjan meðleigjanda um miðjan næsta mánuð. Anna Heiða ætlar að flytja til Darrens um áramótin og af því að hún gistir þar hvort eða er alltaf þá ætlar Shane að flytja inn 15. desember. Shane er sumsé hommi frá New Zealand sem vinnur við að hanna vefsíðuna hérna, ferlega skemmtilegur og sætur strákur - það er svo gott að fá einhvern í húsið sem að við þekkjum vel og við vitum að andinn í húsinu mun ekki eyðileggjast o.s.frv. - hmmmm....hvað fleira....já, á föstudaginn kemur verður haldin jólapartíið eina á einhverjum voða flottum stað í Epsom - dinner, hljómsveit og frítt að drekka til klukkan 1! Púff - sumir eiga sko eftir að vera á rasssssssgatinu! Persónulega er ég að hugsa um að drepast fyrir klukkan 11! he he eh - ég er svo metnaðarfull sjáiði til!jæja...ég er orðin svo rugluð því að klukkan er að verða fimm og það er verið að draga mig í verslunarleiðangur í croydon....og ég sem ætlaði að hafa bjútíkvöld heima hjá mér og raka mig undir höndum og á fleiri stöðum fyrir neðan mitti - lappirnar eru orðnar svo loðnar að það má orðið afþurrka með þeim.... nema hvað...ætli ég skelli mér ekki bara beint á pöbbinn og láti stelpurnar sjá um að versla..... sé til sé til.....fer eftir því hvort að það sé búið að opna visakortið mitt eða ekki. Fékk sent nýtt kort í vikunni og náði í það á pósthúsið í morgun....víííííííí -ég vona að þið séuð enn með þak yfir höfuðið - var að frétta að lundúnarvélinni var snúið til Glasgow í dag - ekki gott..... 10. desemberBrrrrrrrrrrrrrrKuldaboli mættur á svæðið hérna meginn við Atla - og smkv. mogganum er 8 stiga hiti í Reykjavík en aðeins 2 stiga hiti í London.....brrrrrrrrrrrrrrrrrrr alveg drullukalt sko!Klukkan að ganga sjöuna og ég er enn í vinnunni. Er að reyna að vinna mig niður úr bunkanum - það gengur frekar seint að svara öllum fyrirspurnum vegna anna í símanum.....og svo erum við einum færri þessa vikuna því að hún Rebekka þurfti að fara heim á sunnudaginn var því að afi hennar dó á sunnudagsmorguninn.Annars var jólapartíið algjört brill. Það var haldið á "The Epsom Race Court" sem er ferlegur snobbstaður en við vorum alveg útaf fyrir okkur með þessa líka fínu hljómsveit. Eftir matinn, sem var nú bara svona la la - vissuð þið að þjóðarréttur breta, fyrir utan Subway og McDonalds, væri kartöflumús????? - já sko, aðalrétturinn var sumsé kjúklingur með kartöflumús :-/ síðan var bara dansað og drukkið og allir íslendingarnir þarna hegðuðu sér ótrúlega vel (miðað við að það var frítt að drekka á barnum og alles). Jamm, nú voru það Bretagreyin sem gátu ekki haldið áfengi og mat niðri og fengu sér kannski AÐEINS of mikið neðan í því! he he Það eina sem að við gerðum var að syngja hástöfum klámvísur í lok ballsins....sem var audda allt í læ því það skildi okkur enginn he hehæbb aftur, nú er kominn 12. desember - ég náði því miður ekki að klára bréfið seinast - og hef því miður ekki of mikinn tíma núna.....Veit aðeins meira um hvar ég verð um Jólin - staðurinn heitir sumsé Midhurst eða eitthvað svoleiðis og er víst ekkert svo langt í burtu - eitthvað fyrir sunnan Oxford. Ég verð líklegast komin þangað fyrir 6 á aðfangadag til að halda jólin að breskum sið - sem þýðir að ég get ekki tekið upp neina pakka fyrr en þann 25. þ.e. ef að ég fæ einhverja pakka þessi jól. Reyndar er ég búin að kaupa mér eina jólagjöf :) Ég keypti mér þessi fínu stígvél um daginn (fann loksins skó sem ég gat rennt upp kálfana á mér!) sem er jólagjöfin frá mömmu og pabba (takk takk he he). Ég fór í þeim í vinnuna í daginn - algjör gella, þeir eru með svo háum hælum að ég fékk næstu svima og lofthræðluskast þegar ég stóð upp - síðan ákvað ég að vinna yfirvinnu þannig að ég þurfti að labba heim í stað þess að fá far með Kristrúnu og Ó-MÆ-GOD  hvað ég var búin í tánum! Greinilega ekki góðir gönguskór.... best að geyma þá bara þangið til að ég fer á djammið næst! En jæja, segjum þetta gott í bili.jors,Sigga  

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: andrea marta vigfúsdóttir

Hehe.. ég man eftir þessu öllu saman! Mikið vatn runnið til sjávar, og mín bara orðin ráðsett frú miðað við þetta allt saman ;) Mér fannst þú alltaf svoldil Bridget Jones :) og Bob er þá þinn Darcy (en Colin Firth má samt ekki leika hann...!!! COLIN IS MINE!!!!!)

andrea marta vigfúsdóttir, 15.1.2007 kl. 12:28

2 Smámynd: Sigga

Segðu! já, ég gat sko lifað mig inn í B JOnes bækurnar! það var nú margt sem að við áttum sameiginlegt! Og gaman en skrýtið að lesa um það að maður hafi verið að deita og "snogga" o.s.frv! LOL - sakna þess samt ekki neitt - er voða ánægð með lífið, tilveruna og kallinn!

Sigga, 15.1.2007 kl. 13:01

3 Smámynd: andrea marta vigfúsdóttir

Já, og það gleður mig ósegjanlega að þú skulir vera glöð :) risaknús

andrea marta vigfúsdóttir, 15.1.2007 kl. 20:51

4 Smámynd: Íris

Hehe, fyndið að lesa þetta.  Jebb, sammála Andreu.  Þú varst nú ekki svona í des þegar við komum ;)
Hlakka til að sjá þig

Íris, 15.1.2007 kl. 21:52

5 identicon

LOL bara brilljant blogg og veittir mér góða innsín hvernig þetta var áður en ég mætti á svæðið :) koss og knús hlakka til að sjá þig í snjónum eftir NOKKRA daga :) Harps

Harpa (IP-tala skráð) 16.1.2007 kl. 13:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

All and Nothing

Höfundur

Sigga
Sigga
Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Bækur

I recommend:

  • Philip Pullman: His Dark Materials Trilogy
    Great books! If you haven´t read them - your life is missing a great experince!
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.7.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband