Laugardagur, 2. júní 2007
Ástkæra Ylhýra (með enskuslettum!)
Jæja, hef tekið þá ákvörðun að hætta að blogga á ensku sem átti nú að vera fyrir Bob og vini og vandamenn í London og voru þau nú dugleg að kíkja á síðuna til að byrja með en virðist ekki hafa tíma til þess að fylgjast með og nú er Bob kominn þannig að það er engin þörf á ensku bloggi.
En já, mín vaknaði 6.45 í morgun því að hópurinn fékk að koma fyrr í morgunmat. Þetta voru þessir fínir ellismellir frá Kanada - allir rosa ánægðir nema eitt par sem var langt frá því að vera ánægt. Ofnarnir virkuðu ekki og þau héldu að þau myndu frjósa í hel (þeir virkuðu fínt og það var vel yfir 30 stiga hiti þegar ég fór inn á herbergið til að tékka), það var klóak lykt á herberginu (ég fór að athuga og fann enga lykt en spreyjaði samt herbergið) - það var engin baðsápa (full baðsápa en smá stífla þannig að ég gat lagað það á innan við 1 mínútu) - það var hávaði frá viftunni (sem ég gat ekki lagað en ef að þú lokaðir baðherberginu þá heyrðist ekki svo mikið í henni!), sjónvarpið virkaði ekki (virkar ekki í allri byggingunni) og svo hafði gleymst að setja lítil handklæði á baðherbergið (af því að það er ekki til nóg af þeim þannig það var ekki til þegar herbergið var þrifið og svo gleymdist að setja þau inn á seinna - er búin að tala við þernurnar útaf þessu - þetta er náttúrulega ekki gott!)
Oh well, maður spyr sig samt: óheppni að það var allt að í sama herberginu eða óvenju smámunasamt og "grumpy" fólk sem fann upp á að kvarta og kvabba yfir öllu???
Ekki alltaf hægt að gera öllum til geðs og samkvæmt þjónustukönnun frá öðrum í hópnum þá fáum við 5 stig af 5 og þegar þau kvöddu þá þökkuðu þau vel fyrir sig!
En jæja, hópurinn farinn - rólegt um helgina og næstu daga - en mín hefur auðvitað nóg að gera. Það er passað upp á að manni leiðist ekki hérna! :) Ætla að reyna samt að komast í sund á höfn og slappa af og losa um hnútana.
By the way - Við Bob er kominn með heimasíma 586 1815 (18. er minn afmælisdagur og Bob´s er 15 júní!) og hann er einnig með gemsa: 662 5427 - og hann er sumsé í Krummahólum 8 að láta sér leiðast þangað til hann byrjar í vinnunni á mánudag - endilega hringið í hann ef þið megið vera að!
Um bloggið
All and Nothing
VIP
Very Important People
Bækur
I recommend:
-
His Dark Materials Trilogy
Great books! If you haven´t read them - your life is missing a great experince!
:
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Alltaf fullt a f grömpí pirruðu fólki. Iss smámunasemi;)
Þú er nú meiri dugnaðar forkurinn þarna í sveitinni
Knús til þín.............
Íris, 2.6.2007 kl. 19:24
Allt satt sem Íris skrifaði og meira knús
Harpa Bragadóttir, 3.6.2007 kl. 20:01
Lifðu í lukku en ekki krukku
Íris, 3.6.2007 kl. 23:16
Æ láttu ekki svona bilað fólkpirra þig. Það er ekki alltaf hægt að gera öllum til geðs og þó það sé ekki alltaf gaman þá er það nú bara staðreynd....svo þú skalt nú ekkert vera að svekkja þig á þessum smámunum.
Annars frábært að heyra að allt gengur vel. Er Bob semsagt kominn með vinnu? Hvað verður hann að gera?
Kossar sætasta!
Lilja Hrönn (IP-tala skráð) 4.6.2007 kl. 15:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.