góðar fréttir og...ekki svo góðar fréttir

hey og hó

 ég er snillingur! er búin að finna nýjan kokk og hann kemur á svæðið á föstudagsmorgun! Er reyndar þýskur en með mikla reynslu... og já - er mjög jákvæð á þessar breytingar...nema hvað...og hér kemur að slæmu fréttunum - vegna þessa þá kemst ég ómögulega frá í frí um helgina eins og planað var - aumingja Bob, hann varð ekkert smá ógeðslega svekktur....og ég er rosalega svekkt líka og já var akkúrat að enda að tala við hann núna - lítið að gera í lönduninni þannig að hann hangir heima því hann á ekki pening or er pirraður yfir því að geta ekki byrjað að vinna sér inn peninga og já, var nú soldið langt niðri ...við héldum bæði að það yrði meiri vinna í boði en ef þetta er svona óstöðugt, þá er kannski best að hann finni sér nýja vinnu bara...spurning... einhverjar hugmyndir einhver?

en jæja...sit núna og bíð eftir að fólk fari að drulla sér í háttinn svo að ÉG geti farið í háttinn...lítill hópur í kvöld plús nokkrir a la carte þannig að ég tók að mér salinn...búin að hlaupa um eins bavíani og já örugglega misst 5 kg á hlaupunum...I WISH!

en já...reyni að skella mér í bæinn til Bobs og í smá frí í næstu viku, þegar ég er búin að koma kokkinum inn í hlutina og það allt helv vesen er komið á hreint...

svaka stuð eins og venjulega,,,

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Íris

Snilli !!

Íris, 13.6.2007 kl. 18:27

2 Smámynd: andrea marta vigfúsdóttir

Oh, þú reddar alltaf öllu!! En AUMINGJA BOB!!!! ÆÆÆÆ.. og AUMINGJA ÞÚ!

andrea marta vigfúsdóttir, 13.6.2007 kl. 22:05

3 identicon

Til hamingju með að vera búin að finna kokk!!!

En leiðinlegt samt með hann aumingja Bob, get ímyndað mér að þetta sé ekkert voðalega auðvelt fyrir hann. Ég skal hafa augu og eyru opin um vinnur...er samt alveg 100 á því að hann finni nú eitthvað á endanum er hann nú svo klár!

Hafðu það gott skvísan mín! 

Lilja (IP-tala skráð) 14.6.2007 kl. 05:58

4 identicon

Frábært hjá þér, úff og alveg endalaust nóg að gera hjá þér.  Hvenær hættir þú aftur þarna eystra?  Vonandi finnur Bob einhverja vinnu við sitt hæfi og hafi nóg að gera, þannig að hann hafi ekki tíma í að láta sér leiðast. 

Hafðu það gott og þú getur kanski sungið 17.júní lagið til tilbreytingar á 17. júní.  Lítur ekki út fyrir að þú fáir neina tilbreytingu miðað við hvað þú hefur mikið að gera.

kremju knús.

Vigga (IP-tala skráð) 15.6.2007 kl. 19:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

All and Nothing

Höfundur

Sigga
Sigga
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Bækur

I recommend:

  • Philip Pullman: His Dark Materials Trilogy
    Great books! If you haven´t read them - your life is missing a great experince!
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband