Laugardagur, 23. júní 2007
Belgar í morgunmat
en já, er að fæða 42 stykki frá Belgíu. Fólkið byrjaði að bíða eftir morgunmatnum korter yfir 7, sem annars byrjar klukkan 7,30. Mjög óþægilegt þar sem ekki er hægt að undirbúa morgunmatinn án þess að fólk sjái og opna svo dyr þegar hann er tilbúinn! En Við Anna vorum með allt klárt fyrir 7,30 - en það er fyndið hvernig allt virðist alltaf klárast á sama tima!
Annars búin að vera ágætisvika. Mikið að gera að venju, og þó svo að það sé rólegt og lítið að gera, þannig séð, á hótelinu, þá er alltaf yfirnóg að verkefnum sem bíða mín. Svona er þessi bissness...maður planar eitthvað, svo kemur eitthvað uppá, mistök í bókunum, þetta bilar, þetta vantar, þessi vara kom ekki, vitlaus vara kom blah blah...Hef eytt óhemjutíma í símanum að panta inn og koma mér inn í þessar pantanir! Tólið límt við eyrað á mér! Og svo er síminn byrjaður að hringja - fólk að spyrja um herbergi og allt milli himins og jarðar: hvernig er veðrið, sést til jökla? Hvernig er spáin? ertu með svefnpokapláss? Er tjaldstæði á höfn? Hvar eruð þið? Og svo ég svari: þá er veðrið hérna yndislegt - mætti reyndar rigna smá því ég lét bera áburð á grasið!, og spáin er mjög góð og það sést vel til jökla, ég er ekki með svefnpokapláss og það er tjaldstæði á höfn og já, við erum rétt fyrir vestan Höfn! (nákvæmlega 14,8 km til Hafnar!).
Jóna systir útskrifaðist úr Glasgow University of Art í gær - hamingju óskir til hennar - hún fer að koma heim bráðum og mun vinna fyrir norðan - kemur kannski samt í sumar og hjálpar mér hér...sjáum til...
Magga systir átti afmæli í gær, hamingjuóskir til hennar.
jæja - maður á víst að hafa þessar bloggfærslur stuttar og laggóðar....so time for me to shut up!
knús á ykkur
Um bloggið
All and Nothing
VIP
Very Important People
Bækur
I recommend:
-
His Dark Materials Trilogy
Great books! If you haven´t read them - your life is missing a great experince!
:
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hey, ein spurning í viðbót! Hvenær er best að koma í heilsubótardvöl til þín?!?! ;)
andrea marta vigfúsdóttir, 23.6.2007 kl. 12:19
Úff, þvílíkt og annað eins. Ég er að spá, núna seinustu ár hefur þú verið svo mikið á kafi í vinnu og aldrei átt sæmilegt frí. Samt ertu alltaf á fullu og þvílíkt dugleg. Bara segja þér þú stendur þig vel enn ertu ekki komin með nóg?
Til hamingju með systur þínar.
Knús á hlaupum til þín.
vigga (IP-tala skráð) 23.6.2007 kl. 20:34
Til hamingju með systur þínar dugnaðar forkur!!
Efast ekki að þú náir að svara öllum þessum spurningum með mikilli príði:)
Íris, 24.6.2007 kl. 17:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.