Fimmtudagur, 26. júlí 2007
Murder
verð að deila þessarri sögu með ykkur - í gærkveldi kom Gabi til mín og sagði að spænsku konurnar á herbergi 27 hefðu hringt og kvartað yfir hávaða og að einhver hefði öskrað og konan hefði minnst á "murder" - ég sagði henni að hringja í konuna og segja henni að þetta væri örugglega bara hávaði í sjónvarpinu - Gabi kom svo aftur til mín eftir 5 mín og þær hefðu hringt aftur þannig að við fórum upp - þegar upp var komið var Pawel, þjónninn þegar kominn inn til þeirra - og þær allar á náttkjólunum undir sæng - nema hvað það kom í ljós að þær heyrðu einhversstaðar í "motor" (ekki "murder" eins og Gabi heyrði! ha ha Við erum mikið búin að hlægja af þessu í dag ...
væri gaman að hafa murder mystery kvöld samt hérna.... hmmm...spái í því - verst að ég skildi murder mysterí spilin eftir úti ...
oh og já - er búin að finna starfskraft - vinur Pawels og Maciej frá Póllandi - flýgur til landsins á morgun og kemur með rútunni á laugardag! þannig að ég er voða fegin að geta hætt að býsnast yfir þessu...
knús á ykkur xxx
Um bloggið
All and Nothing
VIP
Very Important People
Bækur
I recommend:
-
His Dark Materials Trilogy
Great books! If you haven´t read them - your life is missing a great experince!
:
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hehehe geggjað grín.
Þú ert að meina að Pólverjar haldist best í hótelvinnu?!
Íris, 26.7.2007 kl. 23:03
Guð, þegar ég byrjaði að lesa þessa færslu fékk ég algjört sjokk...geðveikt misterí eitthvað. Hvað myndi maður gera???
Sem betur fer þó var það ekki alvarlegra en mótorháfaði hahahaha.
Kossar elskan, hlakka skuggalega ti lað heyra í þér ( tala nú ekki um að fá aðeins að sjá þig í persónu :) )
Lilja Hrönn (IP-tala skráð) 27.7.2007 kl. 00:53
hehe.. mér dettur í hug hann "Klúsó" vinur okkar :) "MURDER..who said murder.. you said murder.. o.s.frv. :) hehehe.. Ah, a cook who thinks he´s the gardener.. now we´re getting somewhere!! :) Æ, vonandi gengur þetta upp með staffið.. ferlegt að standa í svona veseni.
andrea marta vigfúsdóttir, 28.7.2007 kl. 01:36
hahaha eins gott að þetta var ekki alvöru.
Vonandi verður þetta staffavandamál að úr sögunni þegar þú færð Pólverjann. Askotans vesen á þessu liði að geta ekki tollað í vinnu.
Hafðu það gott og knús.
vigga (IP-tala skráð) 28.7.2007 kl. 13:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.