metkvöld

púff - bilað að gera í gærkveldi - slógum öll met og vorum með 50 manns í a la carte í gær  - þetta gékk allt vel og kokkurinn blótaði óvenju lítið og það vorur engir frakkar að gera okkur lífið leitt (var með frakka í kvöldmat um daginn sem var að gera alla vitlausa með hroka og yfirgengi!) og flestir held ég bara mjög ánægðir með matinn - allaveganna var svisslendingur sem sagðist ALDREI smakkað jafn góðan fisk - hann var alsæll (kannski að bjórinn hafi hjálpað til!

En já - júlí hefur verið...BISSÍ og mín er orðin pínku þreytt - langar bara til að sofa og sofa og sofa...sérstaklega á dögum eins og þessum en úti er rigning og rok - ah hvað það yrði gott að kúra upp í rúmi með góða bók. Í gær náði ég ekkert að leggja mig - gerði 2 heiðarlegar tilraunir en náði ekki að sofna í hvorugt skiptið - var að stressa mig yfir yfirbókun og hafði ekki fundið herbergi með baði -  öll hótel yfirfull frá Egilsstöðum til Víkur - það koma svona dagar - ekki gott að vera á ferðalagi og ekki vera búinn að bóka gistingu fyrirfram á svona dögum.

En já, ég minntist á rigningu - það hafa nú ekki verið margir sólardagar hér í júlí - en það er heldur ekki búið að rigna mikið og mér var tjáð af nágranna okkar að það væru allir brunnar að þorna upp - þannig að það fagna margir rigningunni eflaust - þó ekki ferðamennirnir! Frekjan í þessu liði að vilja fá sól upp á hvern einasta dag - þið eruð í vitlausu landi og ættu að hafa bókað ferð til Spánar ef svo er raunin!

en jæja - es geht nicht (eins og kokkurinn minn myndi orða það! - þó hann myndi nú örugglega reyndar blóta á ensku!) - gottagó xxx

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Íris

Á bara að slá endalaust met;)
Já, ekkert jafnast á við hvíld með góða bók upp í rúmi. 

Er farið að langa hitta þig mín fagra.....

Íris, 31.7.2007 kl. 17:19

2 Smámynd: andrea marta vigfúsdóttir

æææææææ.. þú þarft að fara að fá hvíld... Sendi knús héðan..

andrea marta vigfúsdóttir, 31.7.2007 kl. 23:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

All and Nothing

Höfundur

Sigga
Sigga
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Bækur

I recommend:

  • Philip Pullman: His Dark Materials Trilogy
    Great books! If you haven´t read them - your life is missing a great experince!
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband