Aldurinn að færast yfir

það er nú svo!

old woman 

 

Ég hélt að ég liti út fyrir að vera ca 5 árum yngri en ég er (sumsé enn "tuttugu og eitthvað") og ekki fyrir meira en 4 árum síðan var ég spurð um skilríki þegar ég var að kaupa áfengi og sígarettur í matvörubúð í London, þá löngu orðin lögleg - ég var auðvitað mjög ánægð með þetta og svaraði alltaf: "Why thank you - you just made my day!" (svo bresk!).

Og svo gerðist það í gær að ég fékk sjokk ársins! Ameríkani sem var að tékka sig inn spurði hvort Gabi, sem er 7 árum yngri en ég, væri dóttir mín! Ég varð hreinlega orðlaus og gaf nú í skyn að hann væri "way off" og ég væri stórmóðguð (sem ég var!).

Púff, kannski að ég hafi elst um nokkur ár nú í sumar - kæmi nú mér ekki á óvart það - og já, Gabi er mjög ungleg og er einmitt í sömu stöðu og ég þegar ég var á þrítugsaldri - allir héldu að ég væri miklu yngri en ég var. En vá! púff - ég á aldrei eftir að gleyma þessum vendipuntki í lífi mínu (svo að ég "dramatæseri" þetta nú almennilega!) ha ha

Greyið kom síðan og afsakaði sig og ég gat nú hlegið að þessu á endanum sem og allt starfsfólkið hérna! Ég verð hér eftir kölluð "mama Sigga" ha ha

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Íris

Úps, maður fer að lenda í þessu   En líttu á þetta sem hrós, þú hefur bara tekið þig svo vel út við deskið. Ábyrgðarfull og falleg!!

Íris, 7.9.2007 kl. 17:44

2 identicon

Hann hefur verið að daðra við þig en farið þokkalega vitlausa leið.   Hefur ætlað að segja svo "þá veit ég hvaðan hún hefur fegurðina"

 En ég trúi því að maður sé ekki degi eldri en manni finnst maður vera og ég er sko bara töttttögu og femmm.

Góða helgi

vigga (IP-tala skráð) 8.9.2007 kl. 00:22

3 Smámynd: andrea marta vigfúsdóttir

jiii.. hefðir átt að skalla hann ;) En bara svona til að hugga þig þá er ekki séns  að þú lítir út fyrir að vera móðir manneskju á þrítugsaldri. No way...

andrea marta vigfúsdóttir, 8.9.2007 kl. 14:49

4 Smámynd: Íris

Hehe, sé fyrir mér Siggu skalla einhvern sveittan Ameríkana. Hehehe, svona yfir deskið

Íris, 8.9.2007 kl. 15:40

5 Smámynd: Sigga

Segiði! það hefði nú verið frekar fyndið að  "over-e-akta" aðeins og henda sér yfir deskið og skalla manninn! ha ha

! en já, takk Andrea mín - ég er nú reyndar alveg komin yfir þetta! Ekkert að marka þessa kana ennívei! ha ha flestir vitlausari en ég veit ekki hvað!

Sigga, 9.9.2007 kl. 13:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

All and Nothing

Höfundur

Sigga
Sigga
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Bækur

I recommend:

  • Philip Pullman: His Dark Materials Trilogy
    Great books! If you haven´t read them - your life is missing a great experince!
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband