Miðvikudagur, 12. september 2007
Eins gott að ég kunni að baka!!
Því ég á aldrei eftir að verða súpermódel! Eva, sem er pólskur atvinnuljósmyndari en vinnur hér við almenn störf vildi endilega fá að taka myndir af mér og eftir að hafa nauðað í mér allan daginn lét ég loksins undan (og þegar ég benti á að ég væri með frunsu þá benti hún á að hún væri með photoshop ha ha!) og já við fórum út í kvöldsólina og hún tók nokkrar myndir af mér - ég læt kannski einhverjar myndir hér inn á eftir... en já, ég fór alltaf að hlægja bara þegar hún bað um þessa og hina pósuna og mér leið hryllilega asnalega - en það komu nokkrar ágætis myndir úr þessu - og mér finnst gaman að eiga góðar myndir af mér - það eru til svo margar misheppnaðar - en svona er nú það!
En já, ég kann að baka þannig ég þarf ekkert að hafa áhyggjur af því að kunna ekki að pósa! Þannig að ég er mjög sátt :) Bakaði í seinustu viku skúffuköku eftir uppskrift frá Mömmu og allir voru svo hrifnir að ég bakaði aðra í gær - og bakaði eina sér handa staffinu og keypti rabbabarasultu til að setja á milli og það er líka svona stormandi lukka .... namm namm! Held að maður eigi eftir að hlaupa í spik hérna seinustu dagana....
En annars það að frétta að ég er að fara í klippingu á eftir. Jamms, hef ekki gert neitt við hárið á mér síðan í janúar og er alveg kominn löngu tími á smá snyrtingu. Ætla nú ekki að gera neitt róttækt - ég er enn að safna fyrir giftinguna! ha ha ha
Um bloggið
All and Nothing
VIP
Very Important People
Bækur
I recommend:
-
His Dark Materials Trilogy
Great books! If you haven´t read them - your life is missing a great experince!
:
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Já, það er sko bara fínt að eiga góðar myndir af sér. Þó það sé alltaf svolítið skrýtið að pósa eitthvað.. En gott hjá henni/ykkur :) og súkkulaðikakan hennar mömmu þinnar getur ekki klikkað... nammi namm!
andrea marta vigfúsdóttir, 12.9.2007 kl. 17:47
Já, væri til í góða mynd af mér. Hey, við ættum kannski að fara bara allar vinkonurnar og láta taka góðar myndir af okkur í góðri pósstellingu!!
Það er greinilegt að það er kominn svona "lokasprett" tilfinning í mannskapinn hjá þér!!
Hlakka til að sjá myndirnar af þér og enn meir ÞIG
Íris, 12.9.2007 kl. 17:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.