Sunnudagur, 23. september 2007
Kaflaskil
Jæja
er komin í siðmenninguna! vííííí!
Vaknaði eldsnemma á föstudag og kláraði að pakka og keyrði síðan svotil "streit" í bæinn, með smá kaffisopastoppi í foreldrahúsum og var komin kl 7 um kvöldið í bæinn... og svo var maður bara hálf dofinn á laugardag en um kvöldið fór ég í afmælispartí til Hörpu (mörgæsin!) og þaðan fórum við niður í bæ og mín var komin heim í morgunsárið! Þannig að þið getið giskað á hvernig mér leið í dag!!
En já, rosa góð tilfinning að hafa klárað þennan kafla (svona næstum því...á eftir að gera frágangsskýrslurnar!) en einnig skrýtið að vera komin og búa aftur í borg óttans (ha ha!)... og mér finnst líka skrýtið að búa ekki í miðbænum og vera orðin úthverfaplebbi...
Nóg að gera næstu daga - hitta fjölskyldu og vini og koma mér fyrir í íbúðinni okkar - það vantar ansi margt enn - t.d. ekki nærri nógu mikið pláss fyrir fötin okkar (og samt fór ég í gengum fatabunkann og henti heilum poka af gömlum og snjáðum flíkum sem ég get ekki hugsað mér að nota enn einu sinni!) þannig að ég þarf að fjárfesta í kommóðu og fleiri hlutum... Ikea, here I come! ha ha
knús á línuna...
Um bloggið
All and Nothing
VIP
Very Important People
Bækur
I recommend:
-
His Dark Materials Trilogy
Great books! If you haven´t read them - your life is missing a great experince!
:
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Bíð spennt eftir að hitta þig! og finnst skrítið að hafa þig ekki miðbænum. Annars geta úhverfaplebbar verið ágætir heheh
Íris, 23.9.2007 kl. 23:03
Frábært, gott að þú ert komin úr útlegðinni ohhh vantar stundum ikea vantar hillur fyrir krakkana haha njótu þess að vera komin í faðm fjölskyld og vina
Harpa Bragadóttir, 24.9.2007 kl. 14:27
hæ kjuti
vard bara ad segja þér að mig dreymdi þig í nótt. Þú þurftir að tala við sálfræðing um eitthvað mjög áríðandi sem gerðist 1974, já einmitt, árið áður en þú fæddist. Ég var nú víst ekki mjög prófessionel, og þetta fór fram í svefnherberginu hjá mömmu og pabba í sveitinni. OMG. Hvernig getur mann dreymt svona vitleysu?
Já og velkominn af fjöllum
góða skemmtun í borginni
kveðja
Ragnhildur
Ragnhildur (IP-tala skráð) 26.9.2007 kl. 10:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.