Vinnan göfgar manninn

Púff

 Sé fram á að ég eigi eftir að verða kosinn "miss göfug" þar sem að ég sé fram á að þurfa að vinna mjög mikið næstu mánuði ef ég ætla mér að gera allt sem hér þarf að gera!

nei nei - hafið engar áhyggjur - ég veit nú líka að það er nauðsynlegt að fá sér frí og slappa af og mun sjá til þess að ég geri það reglulega

og ég og Bob ákváðum að ganga til liðs við World Class - nú er planið að fara þangað 3x í viku og það á eftir að gefa manni meiri orku (vonandi!)...og mig langar enn að reyna að spila badminton svona 1x í viku - einhver memm?

Mér finnst þetta allt saman mjög spennandi þótt fjallið sé ansi bratt á að líta þessa stundina.

og þótt að það sé gott að vinna þá er nú öllu hægt að ofgera og Bob því ákveðið að hætta á pöbbnum - nú þegar ég er byrjuð að vinna þá sjáum við fram á að hafa lítinn sem engan tíma saman þegar hann er að vinna svona mikið allar helgar! Skítalaun líka sem rétt hrekkur fyrir taxanum sem að hann þarf að taka heim eftir vinnu! Er bara ekki að borga sig! En hann er nú svo "góður" að hann hefur ákveðið að gefa þeim mánaðar uppsagnarfrest - þó með réttu hann þyrfti ekki að gefa þeim nema í mesta lagi 1-2 vikur - og þar sem að hann er ekki búinn að skrifa undir neinn samning, þá gæti hann bara hætt strax! En honum finnst það ómögulegt - vill ekki vera eins og hinir íslendingarnir!!!

jæja - es geht nicht - back to work!

knús á línuna x


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ójá, vinnan göfgar manninn, en ekki nema upp að ákveðnu marki. Þegar uppfyrir það mark er komið, hrapar vinnudýrið niður í svað niðurlægingar og ómennsku.

Jóhannes Ragnarsson, 4.11.2007 kl. 12:02

2 Smámynd: Íris

oh, loks þegar þú kemur þá sekkur þú í vinnu, en ég er alltaf með heitt á könnunni!! Gott að Bob ætli ekki að verða algjööör íslendingur ;)

Íris, 5.11.2007 kl. 10:41

3 Smámynd: andrea marta vigfúsdóttir

Hugsa til thín! Veit thú getur tetta alveg!! :) Vaeri sko til í badminton, en.... tja.. ;) Knús til ykkar!!!!

andrea marta vigfúsdóttir, 5.11.2007 kl. 22:12

4 identicon

Gott hjá ykkur að skella ykkur í ræktina.

knús og kveðja.

Vigdís Ólafsdóttir (IP-tala skráð) 10.11.2007 kl. 21:06

5 identicon

Hæ elskan...ég er SKO til í badminton!!!! Þó ég kunni ekki neitt þá væri ég ógó til í að læra það ( kann sko smá í tennis, en spaðarnir þar eru svo miklu styttri svo ég hitti aldrei boltann í badminton. )

Heyri annars í þér fljótlega...er farin að sakna þín my luuvely!

Bið að heilsa the Bobster

Lilja Hrönn (IP-tala skráð) 12.11.2007 kl. 12:43

6 Smámynd: Harpa Bragadóttir

Hey sá í facebook að ég kyntist Siggu vinkonu þinni á Barcelona hehe lítill heimur og þegar ég fer að spá í það, hiti ég hana ekki á vegamótum þegar þú komst með Bob í fyrstaskipti til íslands, kannaðist svo við hana en hélt að ég væri bara eitthvað að rugla.

Allavegana gangi þér óskaplega vel í vinnunni og world class og ég skal spila við þig badminton svona í huganum allavegana kveðja .........................

Harpa Bragadóttir, 14.11.2007 kl. 12:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

All and Nothing

Höfundur

Sigga
Sigga
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Bækur

I recommend:

  • Philip Pullman: His Dark Materials Trilogy
    Great books! If you haven´t read them - your life is missing a great experince!
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband