Fimmtudagur, 29. nóvember 2007
oj-i bara ullabjakk
ég var búin að gleyma því hvernig það er að vera veikur - svo langt siðan að ég fékk kvef - en já - oj-i bara ullabjakk... djö er þetta leiðinlegt. Ligg/sit sumsé heima með slæma kvefdrullu með hita, bein-og hausverk og tilheyrandi ógeði... ekki alveg að nenna þessu...
en hef þá loksins tíma til að blogga og segja frá ævintýraferðinni um seinustu helgi - og hef loksins horft á nokkra næturvaktaþætti - eigum við nokkuð að ræða þetta?
en já - við flugum sumsé til Frankfurt og þaðan fórum við í Rínardalinn og sigldum á ánni Rín og fengum að heyra sögur úr dalnum og borðuðum svínafitu! Síðan fórum við í Schonburg kastalann þar sem að við gistum 1 nótt og borðuðum "riddaramáltíð" með höndunum meðan okkur var skemmt af hriðfífli! Bara brill og verð að segja að það ætti að vera skylda að gista í þessum kastala allaveganna einusinni á ævinni!
Jæja, daginn eftir fórum við í háskólabæinn Marburg og eyddum 2 nóttum á 5 stjörnu spa hóteli - mín fór reyndar ekki í spa-ið eftir að ég frétti að sundföt væru bönnuð....
fyrsta daginn í Marburg fórum við í langan göngutúr um þennan bæ (og gott að ég skildi eftir pinnahælana heima!) og svo daginn eftir var frír dagur til að versla. Mín náði að verlsa smá - en hefði maður getað bara sleppt sér ...ef ég hefði nennt því - var barasta ekki í verslunarstuði! Stundum held ég að ég sé með of mikið af karlahormónum í mér!
læt myndir fylgja úr ferðinni von bráðar - og myndir af nýjasta fjölskyldumeðlimnum, Degi Björnssyni sem fæddist á degi íslenskrar tungu, 16 nóvember - dííí - sætastur....ekki frá því að hann sé mjög líkur mér...ha ha
knús á línuna
snifff
hóst
blah
Um bloggið
All and Nothing
VIP
Very Important People
Bækur
I recommend:
-
His Dark Materials Trilogy
Great books! If you haven´t read them - your life is missing a great experince!
:
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Gaman ad heyra af ferdinni! :) hljómar dásamlega! En ég vona ad thú stígir upp úr pestinni sem fyrst.. ekki gaman. Og skiladu bestu kvedjum til Bjössa og fjölskyldu... knús..
andrea marta vigfúsdóttir, 29.11.2007 kl. 18:24
Þú veist hver mín ráðu eru! fengin hjá föður míum
En vonandi losnar þú við þetta kvef eskan og til hamingju með litla frænda;)
Íris, 1.12.2007 kl. 07:37
Hæ elskan, vildi bara segja takk f. gærkvöldið. Var voða gaman að sjá aðeins framan í ykkur og láta rústa mér í pool!
Var ekki annars gaman hjá ykkur?
Kossar og knúsar, vonast til að sjá þig aftur sem fyrst!!!
Lili
Lilja Hrönn (IP-tala skráð) 2.12.2007 kl. 13:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.