Miðvikudagur, 6. febrúar 2008
allt í kafi . . .
. . . í snjó
og mín á kafi í vinnu og á haus í vinnunni
og þess vegna ekki bloggað mikið og enn verri að hafa samband við fólk og fiðrildi... soz gæs
og það helsta í fréttum er:
Ben kom í heimsókn og var í viku - við létum hann borða vondan mat (þorramat), týnast og lenda í partíi í grafarholti (ja... reyndar sá hann nú alveg um það sjálfur - en okkur Bob var ekki skemmt og ég byrjaði á því að hringja í lögguna og á sjúkrahúsin þegar hann skilaði sér ekki heim! ) hann fór í jeppaferð á suðurströndina og át snjó og slóst við grýlukerti, í sund, borðaði pylsu og já ég held að hann hafi barasta skemmt sér konunglega... (en ekki hvað!) ha ha En já, mjög gaman að fá hann í heimsókn...og nú er hann að hræða okkur með þvi að hann komi aftur inna tíðar með tengdó í eftirdragi... oh well! Kannski betra að hún komi fyrr en síðar!
En já...hvað annað?
Svava flutt í nýuppgerða íbúð...allt voða flott hjá henni eins og vanalega, en sá íbúðina þegar það voru kassar um allt og hlakka því til að sjá lokaútkomu - alltaf svo sætt og heimilislegt hjá henni...
Íris varð móðursystir í fyrsta sinn (til hamingju Eyja mín og þið öll!)
Bob fékk loksins strenginn sem slitnaði í gítarinn og kyrjar nú ástarlög í tíma og ótíma (aðalega ótíma!) en allt annars við það sama hjá honum - stundar íslenskunám af miklum krafti og gengur ágætlega..
Ég held áfram að láta pína mig í boot camp - sé smá árangur en þar sem matarræðið hefur ekki alveg verið upp á það besta þá er árangur ekki eins og ég hafði planað (en hei! hvenær ganga þessi blessuðu plön upp!) - en já - það eru víst aðeins 2 tímar eftir en þetta er alveg frábært og hef ég ákveðið að segja upp hinni ræktinni minni og fá mér árskort þarna þegar hin rennur út...
ja já...ætli þetta sé ekki svona það helsta
en hvað er málið með þessa endalausu snjókomu?? sumir anda léttar og segja - global warming what? kannski er þetta undantekningin sem sannar regluna - og næsta vetur getum við skokkað um í sandölum og þurfum að eyða óhemju upphæðum í sólarvarnir....
spáum í því
júllíhú
Um bloggið
All and Nothing
VIP
Very Important People
Bækur
I recommend:
-
His Dark Materials Trilogy
Great books! If you haven´t read them - your life is missing a great experince!
:
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Gott að það sé allt á réttu róli hjá ykkur.
En það fást annsi góðar ólar með taumi í í dýrabúðum svo þú týnir nú ekki gestunum þínum hehe.
En þú hafði samt rangt fyrir þér væna mín ertu búin að gelyma Bigga? Þannig að þetta er í annað sinn hjá henni Írisi ;)
Hafið það gott, knús á ykkur.
Vigga (IP-tala skráð) 8.2.2008 kl. 20:30
Alltaf nóg að gera :) Miss u guys.. kveðjur að norðan
andrea marta vigfúsdóttir, 9.2.2008 kl. 23:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.