ARGH!!!

ég varð alveg brjáluð í gær...eins og ég hef minnst á áður þá er hitakúturinn okkar bilaður...sem þýðir að við höfum ekkert rennandi heitt vatn og engan hita! Jæja það kom gæi að kíkja á þetta seintasta sunnudag og sagði að hann þyrfti varahlut og spurði hvenær við gætum verið heima seinna í vikunni. ég gat ekki tekið frí en bob gat fengið frí á fimmtudeginum, í gær sumsé. Nema hvað - það barasta kom enginn í gær. Bob eyddi frídeginum sínum í að hanga heima og ég hafði planað að fara í sturtu eftir vinnu og Jóna kom í gær með vinkonu sinni og já...barasta allt í hnút. Ég varð svo reið að ég grét! Djöfulsins dónaskapur í þeim að afboða ekki og það virðist enginn vita afhverju þeir komu ekki! Þannig að þeir komast ekki fyrr en á morgun og GUVUÐ má vita hvort að þeir geti lagað kútinn! %$&#(#()$/$=

ég gat þó farið í bað - eyddi klukkutíma í að sjóða vatn í ketlinum og á eldavélinni (gott að baðherbegið er við hliðina á eldúsinu!) og eftir eina rauðvínsflösku og heitt bað komst ég loksins í gott skap....

en svo kom ég í vinnuna og er komin aftur í vont skap....

ARGH!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: andrea marta vigfúsdóttir

Þetta er það sem er allra best við Ísland! Elsku besta blessaða vatnið okkar!!! Þú átt alla mína samúð!!!!!!!! Átt bara að splæsa í dekurdag á Spa til að komast í almennilegt bað!

andrea marta vigfúsdóttir, 13.10.2006 kl. 12:31

2 Smámynd: Íris

Svona getur hlutur sem manni finnst svooo sjálfsagður sett allt úr skorðum......... en eins og Lalli sagði oft: svona er bara lífið"

Vonum að allt verði betra á morgun!

Íris, 13.10.2006 kl. 21:26

3 Smámynd: Harpa Bragadóttir

Ég vona bara að gaurinn sé búin að koma og að þú hafir flatmagað í baði alla helgina (með rúsínu putta og tær ;D )

Harpa Bragadóttir, 15.10.2006 kl. 09:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

All and Nothing

Höfundur

Sigga
Sigga
Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Bækur

I recommend:

  • Philip Pullman: His Dark Materials Trilogy
    Great books! If you haven´t read them - your life is missing a great experince!
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.7.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband