Færsluflokkur: Bloggar

Myndir úr símanum

jæja, þá dreif ég mig í því að setja upp þannig að ég geti sent myndir úr símanum mínum á bloggið - ég á alveg heilan helvítis helling af myndum á símanum og þetta er alveg hin ágætasta myndavél og mér finnst þetta svo sniðugt...

þannig að - ég er byrjuð að blogga aftur þó svo að það verði með öðruvísi móti héðan í frá

tjiriós


akureyri í apríl


Myndskilaboð
Originally uploaded by siggaharpa

á leiðinni að fá okkur brynjuís ef ég man rétt


Bobster


Myndskilaboð
Originally uploaded by siggaharpa

 


horft á ólympíuleika

 

 

En við gerðum meira í dag- versluðum og skrúbbuðum og skúruðum og þvoðum þvott...þetta er allt að koma :)


lokabloggið

hananú! aldrei liðið tveir mánuðir á milli bloggfærslna hjá mér áður!

Ástæðan: mikið að gera hjá mér, og svo hef ég á tilfinningunni að það séu nú ekki margir að lesa þetta, þannig að já, ég er að hugsa um að hætta þessu bloggi - hafði sinn tilgang þegar ég bjó úti og einnig þegar mínir vinir bjuggu erlendis - en nú eru flestir komnir heim (Andrea og Harpa t.d.!) og ég ætla að æfa mig í því að nota símann bara meira - já eða barasta HITTA fólk..

ég læt nú kannski einhverjar myndir hérna af og til - ef að maður fær tækifæri til að taka einhverjar! Er einmitt svo fúl yfir því að ég skyldi hafa gleymt myndavélinni minni þegar ég fór norður - en ANdrea tók nú nokkrar myndir þá helgina...

 júllíhú

s.

 


Sunnudagur til....

sælu???

Sunnudagur hjá mér er til þvottar - jú jú - svona er að búa í lítilli íbúð í stóru fjölbýlishúsi og vera ekki með pláss fyrir þvottavél (og lítil þurrk aðstaða!) og fá 3 tíma á viku til að þvo þvottinn þinn! En þetta venst og þvottavélarnar eru stórar og taka ekki langan tíma þannig að þetta nægir oftast til - ef ekkert kemur upp á!

Sunnudagskvöldin eru síðan frátekin í sjónvarpsglápsmaraþon... maður mætir með ferköntuð augu í vinnuna á mánudagsmorgnum!!  

Í dag skellti ég mér á Mokka með afmælisgelgjunni henni Írisi og síðan var planið að skella sér í sund til að reyna losa nokkra hnúta í herðum og baki en 10 mín stopp í vinnunni breyttist í 90 mín stopp - þannig að það gékk ekki upp því ég þurfti að drífa mig heima ð þvo þvott! Oh well þá er það bara baðkarið góða og láta kallinn nudda sig... (um að gera að þjóðnýta kallinn!)

Annars lítið að frétta - búin að vinna mikið og langa daga og því ekki bloggað mikið - fór þó heim "snemma" úr vinnunni (lesist: eftir 8 tíma!) einn daginn og skellti mér í bíó með Jones (sem stoppaði í rvk á leið til Lisabon!) og vinkonu hennar Fanneyju og við sáum No Country for Old Men! Hún var drullugóð og ég ætla að reyna að draga kallinn og aðra oftar í bíó (seinast fór ég í bíó á Íslandi árið 2005) því sumar myndir verður maður hreinlega að sjá á stóra skjánum og já - þetta kryddar tilveruna ...

Ja ja

har det bra

 

 

 

 

 


Snjórinn farinn

og þá kemur í ljós allt fullt af drasli, sígarettumstubbum og ógeði!

Ég er með algert ógeð á þessu drasli og eyddi hluta af morgninum meðal annars í að hreinsa upp hundaskít eftir einhvern óprúttan hundaeiganda sem er greinilega skítsama að fólk stigi í þetta og beri skítinn með sér út um allt og inn og guð má vita hvert.

Ég er svo reið og pirruð á þessu - ef að ég kemst einhverntímann að því hver þessi óprúttni hundaeigandi er,  þá skal ég lofa ykkur því að ég skúbba upp skítinn með gleðibrag og set hann í umslag og í pósthólfið hjá viðkomandi hundaeiganda   - haldið þið að viðkomandi muni læra af því! Stórefast um það - en mér myndi líða mun betur!

jæja - nóg að gera að venju! 

so long

 

 

 


allt í kafi . . .

. . . í snjó

og  mín á kafi í vinnu og á haus í vinnunni

og þess vegna ekki bloggað mikið og enn verri að hafa samband við fólk og fiðrildi... soz gæs

og það helsta í fréttum er:

Ben kom í heimsókn og var í viku - við létum hann borða vondan mat (þorramat), týnast og lenda í partíi í grafarholti (ja... reyndar sá hann nú alveg um það sjálfur - en okkur Bob var ekki skemmt og ég byrjaði á því að hringja í lögguna og á sjúkrahúsin þegar hann skilaði sér ekki heim! ) hann fór í jeppaferð á suðurströndina og át snjó og slóst við grýlukerti, í sund, borðaði pylsu og já ég held að hann hafi barasta skemmt sér konunglega... (en ekki hvað!) ha ha En já, mjög gaman að fá hann í heimsókn...og nú er hann að hræða okkur með þvi að hann komi aftur inna tíðar með tengdó í eftirdragi... oh well! Kannski betra að hún komi fyrr en síðar!

En já...hvað annað? 

Svava flutt í nýuppgerða íbúð...allt voða flott hjá henni eins og vanalega, en sá íbúðina þegar það voru kassar um allt og hlakka því til að sjá lokaútkomu - alltaf svo sætt og heimilislegt hjá henni...

Íris varð móðursystir í fyrsta sinn (til hamingju Eyja mín og þið öll!)

Bob fékk loksins strenginn sem slitnaði í gítarinn og kyrjar nú ástarlög í tíma og ótíma (aðalega ótíma!) en allt annars við það sama hjá honum - stundar íslenskunám af miklum krafti og gengur ágætlega..

Ég held áfram að láta pína mig í boot camp - sé smá árangur en þar sem matarræðið hefur ekki alveg verið upp á það besta þá er árangur ekki eins og ég hafði planað (en hei! hvenær ganga þessi blessuðu plön upp!) - en já - það eru víst aðeins 2 tímar eftir en þetta er alveg frábært og hef ég ákveðið að segja upp hinni ræktinni minni og fá mér árskort þarna þegar hin rennur út... 

ja já...ætli þetta sé ekki svona það helsta

en hvað er málið með þessa endalausu snjókomu?? sumir anda léttar og segja - global warming what? kannski er þetta undantekningin sem sannar regluna - og næsta vetur getum við skokkað um í sandölum og þurfum að eyða óhemju upphæðum í sólarvarnir....

spáum í því

júllíhú


harðsperrur og aðrar sperrur...

Var með einar verstu harðsperrur sem ég hef fengið í langan tíma í seinustu viku... ég man þegar maður byrjaði haustönn í skógaskóla á sínum tíma og fór að stunda íþróttir aftur eftir nokkra mánaða hlé, 6x á viku (með íþróttatímunum!) þá fékk maður ansi slæmar harðsperrur - en já, ég man ekki eftir því að hafa þurft að bruðla íbúprófen í tvo daga! En já, svo var það nú - ég þakkaði mikið fyrir að vera á bíl með vökvastýri því að ég hefði ómögulega getað lagt bílnum hefði hann verið vövkastýrislaus!

En eftir seinni boot camp tímann, þá hreinlega púluðum við af okkur harðsperrunar, hurfu eins og dögg fyrir sólu!

Annars helgin verið róleg - fór í matarboð til Kristrúnar á föstudagskvöld en hún servaði okkur unaðslega góða kjúklingasúpu (þarf að muna að fá uppskriftina hjá henni!), vann á laugardag og tók því rólega um kvöldið, og í dag var mitt vikulega deit við þvottavélina og skellti ég mér síðan í ræktina með Ásu og úr ræktinni fórum við í kringluna til að taka þátt í útsöluverslunaræðinu. Ég reyni nú eftir bestu getu að forðast það að fara í kringluna þegar mikið er um að vera, en ég sé hreinlega ekki fram á að hafa tíma í vikunni í búðarráp, og mig bráðvantaði nýja íþróttaskó (mínir orðnir 3ja ára gamlir og þó svo að þeir séu ekki þannig séð mikið notaðir, þá eru þeir ekki nógu góðir - keypti þá mjög ódýrt í London á sínum tíma) en já...hvar var ég... já það var ansi mikið að gera í Kringlunni - alltof mikið af fólki fyrir minn smekk - en ég fann góða íþróttaskó á útsölu þannig að ég var sátt.

kíkti síðan í heimsókn til Svövu systur en hún er á fullu að gera upp nýju íbúðina sína - nýtt eldús, nýtt gólfefni...verður gaman að sjá þegar hún er fullgerð... hún er orðin svo sjóuð í þessu...fæ hana næst til að taka mína íbúð í gegn.... ah...maður verður að láta sig dreyma....

júllíhú...

 


búttttttttkamp

jæja góðir hálsar

og gleðilegt nýtt ár

átti þessi fínu áramót, góður matur hjá Írisi, ostabakki hjá Ásu (sem borðar ekki einu sinni ost!), hægt að hlægja að skaupinu og já skálað í freyðivíni í fámennum en góðum hópi hjá Ásu...

Bob var reyndar svekktur með hvað fáir sem að hann þekkti var að fara út...mín búin að vinna allan daginn við að redda blaðamönnum undirfatnaði eftir 45 tíma seinkunn vegna óveðurs...meiri óveðurstíðin... en já...og það þarf víst að sinna þessum ferðamönnum sem öðrum mönnum..

en já..fyrirsögnin er nú vísun í að á seinustu 10 mín ársins 2007 vorum ég Ása og Bob upptekin við að skrá undirritaða í bútkamp námskeið hjá www.bootcamp.is , en Ása hafði skráð sig fyrr í vikunni og já.... ég gat nú ekki sagt NEI...þar sem að ég þarf augljóslega að ná mér niður í kjörþyngd fyrir brullupið í september...og já...fyrsti tíminn var í gærmorgun og mín mætti 9 mín of seint en fékk samt að finna fyrir því að ég hef ekki hreyft á mér rassgatið í marga mánuði (ekki að ráði allaveganna!) - hef í dag fundið fyrir ýmsum vöðvum hér og þar....og mikið vissi ég ekki hvað maður notar magavövðana við að keyra bíl!. Fékk krampa í hægri lærvövða þegar ég var að labba upp stiga og já... hef æmt og emjað næstum við hverja hreyfingu...

annars koma mál upp í vinnunni í dag sem dreyfði huganum (og þar með pínunni) annað ...segi ykkur frá því síðar... þannig að já, þetta var ekki svo slæmt og ég hreinlega hlakka til að mæta í næsta tíma....alveg satt...er í raun ákveðin vellíðan að finna fyrir eymdum í vövðum því að maður veit allaveganna að maður reyndi á sig að ráði svona til tilbreytingar!

 

 

 

ætli maður eigi eftir að líta út eins og gi jane....ég veit nú um suma sem myndu fíla það....

 

 

en ég ætla ekki að raka af mér hárið aftur...lít út eins og lsb....

 

 

og svo fann ég þessa mynd með fyrirsögnina gi jane! ha ha...er þetta ósiðlegt? verð örugglega bönnuð héðan af moggablogginu...sama er mér...mér var ekki boðið á þetta bloggmót sem var verið að gera grín af í skaupinu.... :(

 

oh boy! 

leiters mí darlings

x

s.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

All and Nothing

Höfundur

Sigga
Sigga
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Bækur

I recommend:

  • Philip Pullman: His Dark Materials Trilogy
    Great books! If you haven´t read them - your life is missing a great experince!
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.1.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 913

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband