Færsluflokkur: Bloggar
Föstudagur, 28. desember 2007
áramót, smáraót, óramát...
ah
that time of the year again!
yeaps, it´s that time when you think: why did I put on that weight again after finally loosing some? Why did I spend so much money...why did I not save that money..how many blades can you have in a razor.., is it really better to have 3 blades than just the good old 1?
hmmm
anyways...had a great year really...one of the highlights was obviously me moving back to the "sker", another one"buying" a flat and then "owning" a car that had the same colour as a lobster soup (or kokkteilsósa!) and after that one broke down owning a car that matched the colour of the uniform I wore every day (without exception) for 4,5 month (dark green by the way!)..... and then my travels: to Iceland in Jan for job interview, my trip to London for Kerry´s wedding (and to see THE MAN and to pack our stuff!), my second trip to England during my holiday in october with Robert, and then of course the adventure trip to Germany...and well...breidalsvík was quite nice as well!! ha ha
Work wise it´s been mad - mad - mad...and that is truly the reason I have not been in touch every other day...just did not have the time!
another question, why english??? no bloody idea...just felt like writing in english all of the sudden! it happens!
anyways...wish you all loads of happiness and even more "good stuff" in the year to come my friends! :)
gleðilegt nýtt ár
and of course..thanks for all the good times (although short) in 2007 and hope to have many more in the year to come....
cheers
s.
xxxx
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 21. desember 2007
Jólablogg
vil nú bara segja gleðilega jól öllsömul - sendi ekki nein kort út þetta árið...aftur! Ferleg með þetta...
jólaskapið er í felum - ég finn það nú vonandi bráðlega! ...hlakka til að borða góðan mat á aðfangadag með familíunni - það verður metmæting í foreldrahúsið þessi jól enda fyrsta skiptið í mörg ár sem að allir eru búsettir á skerinu þetta árið!
Svotil búin að versla gjafirnar - gerði það á mettíma...eitthvað smotterí eftir og ég hef falið Bob það verkefni að kaupa restina (oh boy!)
hann ætlar einmitt að flækjast í bæinn til að kaupa mína gjöf í dag... ég rústaði planinu hans því að hann ætlaði að kaupa handa mér skó, en mín þurfti á skóm að halda fyrir jólin og slabbið þannig að ég varð á undan honum...hmmm...hann varð nú frekar fúll maðurinn (hann planar innkaup mjög vel og er búinn að ákveða hvað á að kaupa í hvaða búð o.s.frv..)
og já...þannig að ef að þið rekist á geðillan bölvandi skota ráfandi um miðbæinn eða í kringlunni...þá er það líklegast minn ektamaður... ha ha... run for your life! ha ha
en já - étið nú eins og skepnur og sofið á ykkur stýrur og verið nú góð við hvort annað...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Sunnudagur, 9. desember 2007
eitthvað blaður
Við fórum í Ikea í gær til þess að kaupa svona eitt og annað sem að okkur vantaði í búið - þar á meðal skrifborð en þegar við vorum komin á svæðið þá var kallinn ekki á því að þær útlitsbreytingar sem að ég hafði í huga fyrir íbúðina (og hef talað um í langan tíma!) væru neitt sniðugar! Við fórum eitthvað að gjamma (létt!) á hvort annað og svei mér þá, fólk var farið að gefa okkur auga... vandræðalegt sko! Held stundum að þessar stórverslanir og kringlur dragi fram það versta í manni! Enda forðast ég þær eftir bestu getu sko!
Ég lét eftir (en ekki hver!) og keypti ekki neitt í þessari ferð (og það sem ég ætlaði pottþétt að kaupa var ENN EKKI TIL mér til mikillar ama!) Svo pirrandi þegar hlutirnir eru ekki til - fór í verslunarferð fyrir vinnuna í vikunni í leit að vatnskönnum - þurftum að fara á eina 4 staði áður en við fundum það sem hentaði! kommon!
En já, erum búin að ræða málin betur og ég ætla nú að ná mínu fram - stofunni skal breytt! HA HA HA
en fín helgi annars - þvegið og þrifið í dag - sofið óendanlega mikið - náði að hitta Lindu og Unnar aðeins í gær og var svo að enda við að borða góðan mat sem kallinn eldaði! já, við fengum okkur graflax í hádegisverð og svo smjördeigsbakaðan lax með grænmetisrísottó í kvöldmat...og fulllt af mandarínum inn á milli! Búin að fá nokkurra daga skammt af omega 3.... gott mál
júllíhú
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Sunnudagur, 2. desember 2007
myndir
jæja...er búin að setja nokkrar inn - omg - tekur svo langan tíma
þegar ég er búin að þvo, laga til, leggja mig og allt það...þá set ég fleiri inn...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 29. nóvember 2007
oj-i bara ullabjakk
ég var búin að gleyma því hvernig það er að vera veikur - svo langt siðan að ég fékk kvef - en já - oj-i bara ullabjakk... djö er þetta leiðinlegt. Ligg/sit sumsé heima með slæma kvefdrullu með hita, bein-og hausverk og tilheyrandi ógeði... ekki alveg að nenna þessu...
en hef þá loksins tíma til að blogga og segja frá ævintýraferðinni um seinustu helgi - og hef loksins horft á nokkra næturvaktaþætti - eigum við nokkuð að ræða þetta?
en já - við flugum sumsé til Frankfurt og þaðan fórum við í Rínardalinn og sigldum á ánni Rín og fengum að heyra sögur úr dalnum og borðuðum svínafitu! Síðan fórum við í Schonburg kastalann þar sem að við gistum 1 nótt og borðuðum "riddaramáltíð" með höndunum meðan okkur var skemmt af hriðfífli! Bara brill og verð að segja að það ætti að vera skylda að gista í þessum kastala allaveganna einusinni á ævinni!
Jæja, daginn eftir fórum við í háskólabæinn Marburg og eyddum 2 nóttum á 5 stjörnu spa hóteli - mín fór reyndar ekki í spa-ið eftir að ég frétti að sundföt væru bönnuð....
fyrsta daginn í Marburg fórum við í langan göngutúr um þennan bæ (og gott að ég skildi eftir pinnahælana heima!) og svo daginn eftir var frír dagur til að versla. Mín náði að verlsa smá - en hefði maður getað bara sleppt sér ...ef ég hefði nennt því - var barasta ekki í verslunarstuði! Stundum held ég að ég sé með of mikið af karlahormónum í mér!
læt myndir fylgja úr ferðinni von bráðar - og myndir af nýjasta fjölskyldumeðlimnum, Degi Björnssyni sem fæddist á degi íslenskrar tungu, 16 nóvember - dííí - sætastur....ekki frá því að hann sé mjög líkur mér...ha ha
knús á línuna
snifff
hóst
blah
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Sunnudagur, 18. nóvember 2007
"greit"
týpiskt
eina helgin sem Bob er í fríi á barnum og þá hringir næturmóttakan sig inn veika og mín fann engan til að fylla í skarðið og þurfti því að taka hana sjálf!
er ekki neitt sjúklega ánægð með þetta...eins og gefur að skilja - var búin að lofa mér í brunch til Ásu vinkonu en þurfti því miður að afmelda mig - verð sumsé sofandi fram eftir degi og á svo deit við þvottavélina í kjallaranum seinnipartinn....
stuð stuð
en getur verið að ég sé að fara í ævintýraferð um næstu helgi...watch this space..
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Miðvikudagur, 14. nóvember 2007
stjörnuspá, tarot- og tölulesning dagsins
Aries Daily Horoscope |
Wednesday, November 14 Emotional power and control play a big part in your life now. If you are having difficulty sleeping, it could be because you have too much on your mind. Lighten your mental load, and you will find inner peace. Let other people come to your side.
|
The Emperor can provide order and structure where once only chaos existed. He possesses great intelligence and the confidence required to use it productively. While sometimes considered stern and demanding, he knows how to encourage people to reach their full potential. He sets strict rules and boundaries and expects others to comply.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 4. nóvember 2007
Vinnan göfgar manninn
Púff
Sé fram á að ég eigi eftir að verða kosinn "miss göfug" þar sem að ég sé fram á að þurfa að vinna mjög mikið næstu mánuði ef ég ætla mér að gera allt sem hér þarf að gera!
nei nei - hafið engar áhyggjur - ég veit nú líka að það er nauðsynlegt að fá sér frí og slappa af og mun sjá til þess að ég geri það reglulega
og ég og Bob ákváðum að ganga til liðs við World Class - nú er planið að fara þangað 3x í viku og það á eftir að gefa manni meiri orku (vonandi!)...og mig langar enn að reyna að spila badminton svona 1x í viku - einhver memm?
Mér finnst þetta allt saman mjög spennandi þótt fjallið sé ansi bratt á að líta þessa stundina.
og þótt að það sé gott að vinna þá er nú öllu hægt að ofgera og Bob því ákveðið að hætta á pöbbnum - nú þegar ég er byrjuð að vinna þá sjáum við fram á að hafa lítinn sem engan tíma saman þegar hann er að vinna svona mikið allar helgar! Skítalaun líka sem rétt hrekkur fyrir taxanum sem að hann þarf að taka heim eftir vinnu! Er bara ekki að borga sig! En hann er nú svo "góður" að hann hefur ákveðið að gefa þeim mánaðar uppsagnarfrest - þó með réttu hann þyrfti ekki að gefa þeim nema í mesta lagi 1-2 vikur - og þar sem að hann er ekki búinn að skrifa undir neinn samning, þá gæti hann bara hætt strax! En honum finnst það ómögulegt - vill ekki vera eins og hinir íslendingarnir!!!
jæja - es geht nicht - back to work!
knús á línuna x
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Mánudagur, 29. október 2007
Slátur
Fór austur um helgina með Jones til að hjálpa múttu að taka slátur - svei mér þá, það er ekkert smá langt síðan ég tók þátt í sláturgerð. Ég var nú svolítið lengi að komast upp á lagið með að sauma fyrir og var gert mikið grín af mér fyrir hægaganginn! Þetta tók svo enga stund - ekki heila helgi eins og í minningunni - enda tekur mamma ekki nærri því mikið núna og áður fyrr!
keyrði síðan í bæinn á sunnudag - og vegna veðurs og hálku (og mín enn á sumardekkjum) þá sá ég fram á að ég yrði marga tíma að keyra í bæinn og ákvað ég því að stoppa ekkert hjá þér Vigga mín í þetta sinn (Sorrí!) en þetta gékk nú allt vel og það var rennifæri frá Selfossi og í bæinn og nagladekkin fara undir á morgun!
kveðja úr snjónum í holtinu... x
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þriðjudagur, 23. október 2007
Bloggleti
er agalega löt við að blogga þessa dagana... nei annars - er löt þessa dagana! Svei mér þá, manni verður ekkert úr verki þegar maður er "heimavinnandi húskona" (get ekki sagt móðir þar sem að ég á engin börn!!!) - ferlegt hreint! Er hreinlega farin að hlakka til að demba mér út í 200% vinnu aftur! ég veit, stórskrýtin!
en já, Helgin var fín. Ég og Ása fengum okkur í staup til að halda upp á það að hún sé loksins búin að finna íbúð - ástand á þessum leigumarkaði sko..segi ekki meir, annars gæti maður röflað um það í marga daga! En já við gerðum nú lítið - kíktum aðeins á hálendinginn og fórum síðan heim að sofa uppúr miðnætti!
Síðan passaði ég dúllurnar hennar Lindu á laugardagskvöldið - písofkeik - þær eru svo rólegar, eins og mamman :) Síðan var Bob það heppinn að hitta meðlimi úr the magic numbers á pöbbnum og náði auðvitað að heilla þá upp úr skónum og við vorum því sett á gestalista á tónleikunum á Nasa á sunnudagskvöldið - og við gátum auðvitað ekki sleppt því að fara. Fín hljómsveit, geggjaður söngur og áður en við fórum á tónleikana borðuðum við á Red Chilli - fínn og ódýr matur - fer þangað pottþétt aftur!
júllhú - ætla að hrista af mér slenið og reyna að gera eitthvað af viti hérna....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Um bloggið
All and Nothing
VIP
Very Important People
Bækur
I recommend:
-
His Dark Materials Trilogy
Great books! If you haven´t read them - your life is missing a great experince!
:
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar