Færsluflokkur: Bloggar
Þriðjudagur, 16. október 2007
home sweet (but chilly!) home
Hávdí
komin heim! Fín ferð, fengum geggjað veður allan tímann, 15-18 stiga hiti upp á hvern dag og rigndi ekkert á okkur (maður er eiginlega í smá sjokki hérna yfir kuldanum sem tók á móti okkur hér heima!). Ég náði hitta held ég barasta ALLA (nema Addý og ef þú lest þetta: leiðinlegt að missa af þér sæta!) og verlsaði fullt (en hefði nú alveg getað verslað meira ef ég hefði haft meira pláss og átt meiri pening!) og djammaði slatta (mín í afeitrun þessa vikuna!)....
En mikið er nú gott að þurfa ekki að drífa sig í vinnu strax! Vorkenni kallinum mínum (sem svaf meira að segja yfir sig í morgun) en hann er að vinna til 1 í nótt og þarf að vinna mikið næstu vikurnar!
En ég verð heimavinnandi húsmóðir í 2 vikur til viðbótar - ah lovely!
knús á línuna xx
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Þriðjudagur, 2. október 2007
skúra skrúbba bóna
rífa af öllum skóna....la la la (og syngja nú með!) æ - ég veit, nú verðið þið með þetta lag á heilanum....úps!!!
well, er ekki búin að skúra - enn! og ekki bóna heldur - en er búin að skrúbba baðherbergið - omg - var kominn tími á það sko heldur betur!
Annars dagurinn búin að fara í lítið annað - fór í sund (og nb ég synti í þetta sinn og teygði síðan á í heita pottinum! Er að þjálfa mig upp fyrir búðarröltarmaraþonið!), fór í kaupfélagið (til að kaupa hreingerningavörur!), í mat til brósa.... "Basically" gerði allt annað en ég ætlaði mér að gera: klára bévítans skýrsluna! Bobster að vinna þannig að það er líklegast best að nota tækifærið meðan maður er einn heima og með vinnufrið og klára hana bara af - ekki satt? ég veit að ég er orðin hundleið á að heyra tuðið í sjálfri mér útaf þessarri skýrslu þannig að þið hljótið að vera komin með grænar....
júllíhú
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Mánudagur, 1. október 2007
Ammæli og harðsperrur
ja ja
jú jú
mikið rétt
það er þessi tími ársins:
ANDREA á ammmæli í dag
(svona just in case að það hafi farið framhjá einhverjum!!)
En já, til hamingju dúllan mín og þakka mikið vel fyrir frábæra sveitaferð - brill dagur í alla staði...bara með smá harðperrur eftir sveitafitnessið...líklegast eftir að setja niður karteflurnar!!!! ha ha
Bob var nú ekki par ánægður þegar ég sagði honum að ég hefði nú verið í seinasta sæti í sveitafitness keppninni þannig að hann vildi byrja að þjálfa mig upp strax fyrir næstu keppni og vildi fara í húsasmiðjuna til að kaupa nagla og spýtur...ha ha ha...
Er annars bara loksins að vakna til lífisns...ekki langt í London - maður á eftir að vera fitt eftir að rápa um búðir stórborgarinna.... það held ég nú!
la la la
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 26. september 2007
Arg Garg
arg og garg
ég hef verið með sama hotmeilið síðan 98 - allt verið í gúddí - alltaf! nema hvað það er eitthvað rugl í gangi og ég get ekki lesið meilin mín...get spjallað á msn en ekki skoðað inboxið né hina folderana...
þetta er að pirra mig ÓGEÐSLEGA
ÞAÐ ERU 17 NÝ E-MAIL í inboxinu mínu sem ég virðist ekki núna geta haft aðgang að!
Bob, sem þykist nú vera snillingur í þessum málum veit ekki hvað veldur
og hvað gerir kella þá?
hún argar og gargar
arg
garg
arggarg
ætli ég verði ekki að fá mér nýjan account... það er kannski ekki svo slæmt...
ég veit! ladysigridur@hotmail.com - how does that sound? ha ha ha
jæaj, nóg komið að nöldri - gæti skrifað fullt um hvað ég gerði skemmtilegt í dag og í gær - en bara passar ekki við þetta nöldurblogg! meira um það næst
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Sunnudagur, 23. september 2007
Kaflaskil
Jæja
er komin í siðmenninguna! vííííí!
Vaknaði eldsnemma á föstudag og kláraði að pakka og keyrði síðan svotil "streit" í bæinn, með smá kaffisopastoppi í foreldrahúsum og var komin kl 7 um kvöldið í bæinn... og svo var maður bara hálf dofinn á laugardag en um kvöldið fór ég í afmælispartí til Hörpu (mörgæsin!) og þaðan fórum við niður í bæ og mín var komin heim í morgunsárið! Þannig að þið getið giskað á hvernig mér leið í dag!!
En já, rosa góð tilfinning að hafa klárað þennan kafla (svona næstum því...á eftir að gera frágangsskýrslurnar!) en einnig skrýtið að vera komin og búa aftur í borg óttans (ha ha!)... og mér finnst líka skrýtið að búa ekki í miðbænum og vera orðin úthverfaplebbi...
Nóg að gera næstu daga - hitta fjölskyldu og vini og koma mér fyrir í íbúðinni okkar - það vantar ansi margt enn - t.d. ekki nærri nógu mikið pláss fyrir fötin okkar (og samt fór ég í gengum fatabunkann og henti heilum poka af gömlum og snjáðum flíkum sem ég get ekki hugsað mér að nota enn einu sinni!) þannig að ég þarf að fjárfesta í kommóðu og fleiri hlutum... Ikea, here I come! ha ha
knús á línuna...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 18. september 2007
spurning kvöldsins
is the midnight sun going to show tonight?
- no, not until next June love!!!
svartniðamyrkur! sólin löngu sest!
sumar spurningar!!!
er í smá spennufalli held ég!
spennandi
og kokkurinn er að gera mig bilaða
nenni honum ekki lengur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þriðjudagur, 18. september 2007
mildara
Jæja
þá er nú veðrið aðeins búið að mildast - hefur tekið stökkbreytingum í nótt og þegar ég vaknaði í morgun var óeðlilega heitt inní herberginu enda glugginn lokaður og ofnin á fullu. Ég svaf illa í nótt, líklegast vegna "súrefnisskorts"
Jæja, seinasti dagurinn í dag: Bára lögst í bleyti og mæjónesið orðin gul
Goggi, hentirðu útigrillinu?
lol
get endalaust helgið að þessu
hafið það nú súpertrúpergott í dag
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Sunnudagur, 16. september 2007
ha ha
og þá hvarf hún loksins fyrir rest
agalega getur maður verið óþolinmóður svona á sunnudagsmorgnum!
En hér eru fjöllin hvít, hætt að snjóa og sést í bláan himin - undursamlega fallegt! Sýni ykkur myndir við tækifæri
hafið það gott í dag - ég ætla að fara og læra af lexíu dagsins: "þetta kemur allt með kalda vatninu" og fá mér heitt kakó með
júllíhú
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Sunnudagur, 16. september 2007
argh
var að prófa mig áfram og var ekki ánægð með útkomuna og er búin að eyða þessarri færslu hér að neðan en hún kemur samt fram! skil þetta barasta ekki djö**** krapp er þetta blogg
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 15. september 2007
Kári lætur að sér kveða
ég bara varð að segja ykkur að það er búið að snjóa hérna í allan dag og jörð orðin svona gráhvít... Ég er nú ekki alveg tilbúin fyrir þessa vetrarsýningu Kára á síðsumri, var nú búin að undirbúa mig undir komu haustsins þannig að maður er nú í hálfgerðu sjokki hérna. Og runnarnir hérna fyrir utan enn sumargrænir þannig að það er eitthvað rangt við þessa mynd...
.... vona að blessaðir ferðamennirnir sem eiga eftir að koma í hús lendi ekki í vandræðum!
Annars er ég með ástralskt par sem er agalega ánægð með þessa snjókomu og sátu hérna heillengi kaffi og horfðu á snjókomuna...
ekta veður til þess að drekka heitt kakó og kúra uppí rúmi
finnst ykkur ekki?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Um bloggið
All and Nothing
VIP
Very Important People
Bækur
I recommend:
-
His Dark Materials Trilogy
Great books! If you haven´t read them - your life is missing a great experince!
:
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar