Færsluflokkur: Bloggar
Föstudagur, 14. september 2007
My space v face book
er komin á space face...nei face book! ha ha hægt að rugla með þetta til og frá - my face, space book phew- er svo þreytt að ég get ekki tjáð mig almennilega - en já, ég ákvað að skrá mig í face book - Bob og og fullt af liði frá DTW er á því og þetta er ágætisleið til að vera í sambandi þar sem að ég nennti ekki að blogga lengur á ensku - og samkvæmt Bob þá er my space "so yesterday" og face book "so now" ha ha - Bob er svo "a gay" eftir þessu að dæma - hann sagði þetta náttúrulega ekki...ég er bara að rugla vegna svefnleysis...
zzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzzz
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 13. september 2007
Eftir viku
+ 1 dag
verð ég kannski á leiðinni í bæinn!
sjáum til
þetta er allt að koma
btw má sjá nýju "Sigga súpermódel" myndirnar í sumar 2007 - vonast nú til að setja inn almennilegar myndir þangað bráðlega - verð að fá lánaðar myndir frá samstarfsfólki mínu þar sem að ég á því miður enga myndavél - bæti vonandi bráðum úr því - ómögulegt að eiga ekki myndavél!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 12. september 2007
Eins gott að ég kunni að baka!!
Því ég á aldrei eftir að verða súpermódel! Eva, sem er pólskur atvinnuljósmyndari en vinnur hér við almenn störf vildi endilega fá að taka myndir af mér og eftir að hafa nauðað í mér allan daginn lét ég loksins undan (og þegar ég benti á að ég væri með frunsu þá benti hún á að hún væri með photoshop ha ha!) og já við fórum út í kvöldsólina og hún tók nokkrar myndir af mér - ég læt kannski einhverjar myndir hér inn á eftir... en já, ég fór alltaf að hlægja bara þegar hún bað um þessa og hina pósuna og mér leið hryllilega asnalega - en það komu nokkrar ágætis myndir úr þessu - og mér finnst gaman að eiga góðar myndir af mér - það eru til svo margar misheppnaðar - en svona er nú það!
En já, ég kann að baka þannig ég þarf ekkert að hafa áhyggjur af því að kunna ekki að pósa! Þannig að ég er mjög sátt :) Bakaði í seinustu viku skúffuköku eftir uppskrift frá Mömmu og allir voru svo hrifnir að ég bakaði aðra í gær - og bakaði eina sér handa staffinu og keypti rabbabarasultu til að setja á milli og það er líka svona stormandi lukka .... namm namm! Held að maður eigi eftir að hlaupa í spik hérna seinustu dagana....
En annars það að frétta að ég er að fara í klippingu á eftir. Jamms, hef ekki gert neitt við hárið á mér síðan í janúar og er alveg kominn löngu tími á smá snyrtingu. Ætla nú ekki að gera neitt róttækt - ég er enn að safna fyrir giftinguna! ha ha ha
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 10. september 2007
framför?
Hún er allaveganna í nærbuxum þarna! Það hlýtur nú að teljast til framfara!!!
Britney Spears vakti litla lukku á MTV-verðlaununum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 6. september 2007
Aldurinn að færast yfir
það er nú svo!
Ég hélt að ég liti út fyrir að vera ca 5 árum yngri en ég er (sumsé enn "tuttugu og eitthvað") og ekki fyrir meira en 4 árum síðan var ég spurð um skilríki þegar ég var að kaupa áfengi og sígarettur í matvörubúð í London, þá löngu orðin lögleg - ég var auðvitað mjög ánægð með þetta og svaraði alltaf: "Why thank you - you just made my day!" (svo bresk!).
Og svo gerðist það í gær að ég fékk sjokk ársins! Ameríkani sem var að tékka sig inn spurði hvort Gabi, sem er 7 árum yngri en ég, væri dóttir mín! Ég varð hreinlega orðlaus og gaf nú í skyn að hann væri "way off" og ég væri stórmóðguð (sem ég var!).
Púff, kannski að ég hafi elst um nokkur ár nú í sumar - kæmi nú mér ekki á óvart það - og já, Gabi er mjög ungleg og er einmitt í sömu stöðu og ég þegar ég var á þrítugsaldri - allir héldu að ég væri miklu yngri en ég var. En vá! púff - ég á aldrei eftir að gleyma þessum vendipuntki í lífi mínu (svo að ég "dramatæseri" þetta nú almennilega!) ha ha
Greyið kom síðan og afsakaði sig og ég gat nú hlegið að þessu á endanum sem og allt starfsfólkið hérna! Ég verð hér eftir kölluð "mama Sigga" ha ha
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Miðvikudagur, 5. september 2007
All work and no play makes Sigga a dull girl
Cabin fever (samkvæmt Wikipedia http://en.wikipedia.org/wiki/Cabin_fever )
Cabin fever is a condition that produces restlessness and irritability caused from being in a confined space. The actual word is a slang term for a claustrophobic reaction that takes place when a party is isolated and/or shut in together for an extended period of time.
...
One of the best-known stories about cabin fever is Stephen King's The Shining which involves a family of three trapped in an isolated resort in the dead of winter.
Þar hafið þið það! Við þjáumst öll af Cabin Fever hér eftir 4 mánaða einangrun! Ég vona bara að þetta endi ekki eins og í "the shining" hér...
Og vitiði hvað?... Eina "lækningin" við "cabin fever" er "relocation" (nenni ekki að bjástra við að reyna að þýða þessi orð - enskan er stundum bara svo miklu betri....)
þannig að maður telur bara dagana
16 dagar eftir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 4. september 2007
LOL
love it!
hef ekki séð auglýsinguna en mér finnst þetta bara fyndið
þjónninn minn sagði þegar ég var búin að útskýra fyrir honum afhverju ég væri skellihlægjandi hérna fyrir framan tölvuna: "you will burn in hell Sigga, you know that!"
oh well
ef það þýðir að það sé enginn húmor í himnaríki, þá vil ég nú frekar vera þar!
Biskup segir nýja auglýsingu Símans smekklausa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 31. ágúst 2007
Föstudagskvöld!?!
dííí
var að fatta að það væri föstudagur - og já, klukkan er orðin hálf átta þannig að það er föstudagskvöld....
maður lagði svo mikla merkingu á föstudagskvöldin hér í den (lesist: í London!)- enda fékk ég fríhelgar þá - svona flestar helgar - og maður hætti snemma í vinnunni (ja...þ.e.a.s ég vann yfirleitt ekki yfirvinnu á föstudögum og fór á réttum tíma heim!) og fór á barinn og talaði um viðburði vikunnar og lá síðan í þynnku á laugardögum og horfði á crap tv!
hmmm - sakna ég þessa? Definately ekki þynnkunnar - en væri mikið til í að vera í góðra vina hópi núna ...
annars það að frétta að kokkurinn er með tannrótarbólgu og finnur til í hvert sinn sem að hann hlær - og haldiði ekki að ég sé barasta búin að reyta af mér brandarana í dag - alveg óvart...hef ég kannski alltaf verið svona fyndin???
góða helgi folks
x
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 30. ágúst 2007
Bob í nýrri vinnu
hæ og hó
Jæja, Bob er að byrja í nýrri vinnu í dag - vona að það gangi allt vel hjá honum. Hann er sumsé núna að vinna hjá Össurri. Var orðinn mjög leiður á hinni vinnunni og grunaði um að það væri verið að svindla á honum launalega séð - þetta var allt voða dúbíus....
Mín búin að taka því rólega í vikunni - hef sofið út og farið í sund og tjillað! Og nú gengur þetta ekki lengur - kominn tími til að gera eitthvað af viti!
20 dagar í seinasta tékk-út!
x
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Sunnudagur, 26. ágúst 2007
engin reykjavíkurferð í þetta skiptið....
böööö
var búin að plana frí til Reykjavíkur á þriðjudag en mín var soldið utan við sig og planaði þetta illa og var að fatta að það er ekki flogið á þriðjudögum þannig að þetta er allt saman eitthvað brenglað þannig að ég er hætt við rvk frí...
og þó mig langi í frí - þá finnst mér 15 þús kall fyrir flugið ansi mikið og svo eyðir maður alltaf slatta í hitt og þetta og kjaftæði..þannig að mér finnst það ekki þess virði að fara í tveggja daga frí ef það á eftir að kosta mig 30 þús kall eða meira...... ég hugsa bara um hvað ég geti keypt fyrir peninginn í London þegar ég og Bob förum þangað í október...jú jú - búin að kaupa flugið og alles - cannot wait!
og svo er nú ekki mikið eftir - er nú að hugsa um að taka því rólega meðan ég hef starfsfólk til að leysa mig af en í byrjun september hætta 2 og þá verðum við 5 eftir :) En það er nú yfirnóg!
ennívei.... kannski að ég geti farið snemma í háttinn ef fólk getur nú farið að láta sjá sig...ótrúlega mikið um það að fólk tékki seint inn... bööö
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Um bloggið
All and Nothing
VIP
Very Important People
Bækur
I recommend:
-
His Dark Materials Trilogy
Great books! If you haven´t read them - your life is missing a great experince!
:
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar