Færsluflokkur: Bloggar

sól og sæla

já.... hmm....

....allaveganna sól! ha ha -

gerðist eitthvað með seinust færslu - ætlaði að skrifa "og ég er illa sofin og í slæmu skapi..." en færslan vistaðist nú bara svona! En seinnipartinn braust sólin fram og það var yndislegt veður - og skapið skánaði nú aðeins um leið!

Eins og Íris sagði, það þýðir ekkert annað en að fara í pollíönnuleik þegar ástandið er slæmt! og hananú!

ítalar voru hjá mér í gær - æ - þeir eru ágætir þessar elskur - nema hvað - þeir báðu um morgunmat kl 7  en ekki 7,30 eins og venjulega  - að það var nú lítið mál að verða við því - og þurftum því að vakna hálftíma fyrr - god that´s tough - og já - við byrjuðum að preppa kl 6,30 og það var fólk komið hérna fram og byrjað að bíða og er held ég ferlega fúlt að hafa ekki getað byrjað að borða morgunmat strax kl 6,30! Ranghvolfdi í sér augunum þegar ekki var hægt að fá kaffi o.s.frv.  

en svona er þetta nú! Ekki alltaf hægt að verða við öllum beiðnum! Hvað myndi Pollýanna segja? hmmm...dettur ekkert í hug.... blah

vonandi hafið þið það gott í rigningunni í rvk - ég ætla að reyna að njóta sólarinnar meðan hún lætur sjá sig hér....

 

 


grátt og drungalegt

 

og ég

vil nú taka það fram

að þeir flugust ekki á með hnefunum heldur hreyttu soldið vel í hvorn annan! Ef það hefði verið alvarlegra en það, þá hefðu þeir nú báðir fengið að fjúka

út í buskann

en allt í gúddí núna - svaf í heila 9 tíma í nótt! svona næstum úthvíld! Rússar í mat í kvöld - best að finna til vodkann og brennivínið - ætli ég geti ekki látið þá borða hákarlinn líka - yrði nú gott að losna við hann - er að sjá fram á að ég keypti alltof mikið af hákarli...

 júllíhú


Upp úr pottinum sauð...

....í gærkveldi og þjóðverji og pólverjji tókust á í eldúsinu!

Ég varð svo reið að ég gat ekkert sofið - þannig að núna er ég óúthvíld og úrill!

Er búin að lesa yfir þeim (á minn máta!) og vonandi gerist þetta ekki aftur - annars verður einhver látinn fjúka...

32 dagar eftir

and counting

 


er með ofnæmi fyrir spánverjum og ítölum!

er hægt að fá ofnæmislyf við þessum kvilla?

 


sjónvarp hvað!

já - mín þarf sko ekki að horfa á guiding light (eða lightning guide eins og ég einu sinni kallaði það óvart!), bold & the beautiful og allt það krapp - fæ þetta allt beint í æð!

þannig er nú mál með vexti að ég réði stelpu sem þjónn sem var "vinur" hins þjónsins míns, sem ég kalla Namma (lókal húmor!) Síðan kom í ljós að þau voru reyndar par - eftir að ég var búin að ráða hana - síðan kom í ljós rétt áður en hún kom að þau voru nú aðeins búin að deita í 3 vikur! En já - fyrstu vikurnar var alltí gúddí - svona smá rifrildi sem maður frétti af - en síðustu vikuna eru þau búin að hætta saman 2x - og í seinasta skiptið "for good" - og hún flutt út úr herberginu! Nema hvað - í gær sauð uppúr þannig að ég þurfti að senda hana "heim" - þvílíkt drama hérna! púff - var sko ekki ánægð! Er búin að tala yfir þeim báðum og hef bannað þeim að tala sitt tungumál þegar þau eru að vinna saman - allt á ensku takk! vona að þetta reddist - ekki svo langur tími þangað til að "nammi" og "hommi" hætta...

 

jæja - þarf að fara að gefa nokkrum frökkum að borða..

x

 

 

 


verslunarmannahelgin

jæja þá er hún búin, þessi blessaða verslunarmannahelgi - 10 þús manns á höfn en ég varð voða lítið vör við það.

Bob kom og við skelltum okkur út úr "bænum" og ég bókaði okkur á Hótel Bláfell á Breiðdalsvík og á leiðinni kíktum við í sund á Djúpavogi og borðuðum síðan á Hótel Bláfelli og já.... það var auðvitað ekkert að gerast og eftir rómantíska göngutúrinn okkar og eina skák sem ég held að Bob hafi ekkert lagt sig fram við að "reyna að vinna" (sénsinn að hann geti unnið mig hvorteðaer!) því að honum finnst svo leiðinlegt að tefla - já þá horfðum á American Pie II og ég sofnaði síðan yfir Hannibal - og svo lögðum við af stað aftur til baka á Sunnudag og borðuðum humar á Höfn og já...þurfti því miður að fara aftur á hótelið til að gera skýrslur og vesen!

Búið að vera geggjað veður en nú er að þykkna upp og spáir rigningu næstu daga.....

jæja...have to love you and leave you...

xx


metkvöld

púff - bilað að gera í gærkveldi - slógum öll met og vorum með 50 manns í a la carte í gær  - þetta gékk allt vel og kokkurinn blótaði óvenju lítið og það vorur engir frakkar að gera okkur lífið leitt (var með frakka í kvöldmat um daginn sem var að gera alla vitlausa með hroka og yfirgengi!) og flestir held ég bara mjög ánægðir með matinn - allaveganna var svisslendingur sem sagðist ALDREI smakkað jafn góðan fisk - hann var alsæll (kannski að bjórinn hafi hjálpað til!

En já - júlí hefur verið...BISSÍ og mín er orðin pínku þreytt - langar bara til að sofa og sofa og sofa...sérstaklega á dögum eins og þessum en úti er rigning og rok - ah hvað það yrði gott að kúra upp í rúmi með góða bók. Í gær náði ég ekkert að leggja mig - gerði 2 heiðarlegar tilraunir en náði ekki að sofna í hvorugt skiptið - var að stressa mig yfir yfirbókun og hafði ekki fundið herbergi með baði -  öll hótel yfirfull frá Egilsstöðum til Víkur - það koma svona dagar - ekki gott að vera á ferðalagi og ekki vera búinn að bóka gistingu fyrirfram á svona dögum.

En já, ég minntist á rigningu - það hafa nú ekki verið margir sólardagar hér í júlí - en það er heldur ekki búið að rigna mikið og mér var tjáð af nágranna okkar að það væru allir brunnar að þorna upp - þannig að það fagna margir rigningunni eflaust - þó ekki ferðamennirnir! Frekjan í þessu liði að vilja fá sól upp á hvern einasta dag - þið eruð í vitlausu landi og ættu að hafa bókað ferð til Spánar ef svo er raunin!

en jæja - es geht nicht (eins og kokkurinn minn myndi orða það! - þó hann myndi nú örugglega reyndar blóta á ensku!) - gottagó xxx

 


Murder

verð að deila þessarri sögu með ykkur - í gærkveldi kom Gabi til mín og sagði að spænsku konurnar á herbergi 27 hefðu hringt og kvartað yfir hávaða og að einhver hefði  öskrað og konan hefði minnst á  "murder" - ég sagði henni að hringja í konuna og segja henni að þetta væri örugglega bara hávaði í sjónvarpinu - Gabi kom svo aftur til mín eftir 5 mín og þær hefðu hringt aftur þannig að við fórum upp - þegar upp var komið var Pawel, þjónninn þegar kominn inn til þeirra - og þær allar á náttkjólunum undir sæng - nema hvað það kom í ljós að þær heyrðu einhversstaðar í "motor" (ekki "murder" eins og Gabi heyrði! ha ha Við erum mikið búin að hlægja af þessu í dag ... 

væri gaman að hafa murder mystery kvöld samt hérna.... hmmm...spái í því - verst að ég skildi murder mysterí spilin eftir úti ...

oh og já - er búin að finna starfskraft - vinur Pawels og Maciej frá Póllandi - flýgur til landsins á morgun og kemur með rútunni á laugardag! þannig að ég er voða fegin að geta hætt að býsnast yfir þessu...

 knús á ykkur xxx

 


Another one bites the dust

Jæja

þá var einn starfsmaðurinn að hætta - hmmm - já...tveir hættu hjá mér í vikunni þannig að ég er á fullu að leita að nýjum starfskrafti!

Iza - sem var alveg FRÁBÆR starfskraftur og  yndisleg stelpa ákvað að fara heim til Póllands - þetta hefur verið erfiður tími hjá henni þar sem að góð vinkona hennar dó í bílslysi og hundurinn hennar dó og trouble með kærastann o.s.frv... en já, þegar ég vissi að Iza væri að hætta - þá réð ég ungan strák úr bænum! Hann entist ekki í viku! Er nú bara fegin að vera laus við hann í raun - er reynslunni ríkari núna - trust ones instinct! En já - er með svo gott lið að þetta reddast í viku eða svo...en er að vonast til að finna einhvern mjög fljótlega!

Annars það að frétta að Tobba, Mamma, Pabbi, Margrét og Áróra komu í heimsókn í seinustu viku - geggjað að hitta þau og komast aðeins í burt - við fórum út að borða á humarhöfnina og það var góður matur - mæli þó ekki með að þið fáið ykkur heilan humar - of mikið vesen að borða - best að halda sig bara við humarhalana!

Well folks - hafið það nú gott xxx


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

All and Nothing

Höfundur

Sigga
Sigga
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Bækur

I recommend:

  • Philip Pullman: His Dark Materials Trilogy
    Great books! If you haven´t read them - your life is missing a great experince!
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband