Færsluflokkur: Bloggar

Enn á lífi!!!

svei mér þá - seinust tvær vikurnar hafa nú flogið! og mín barasta ekki haft tíma til að blogga eða lesa annarra manna blogg eða neitt...fréttir? Hvað er nú það? Fór í fyrsta skiptið síðan ég kom hingað út eftir klukkan 6 - jamms - skellti mér í heimsókn til nágrannakonu minnar...það var rólegt að gera á hótelinu - var hópur sem var í gistingu en ekki í mat - cheap bastards!

en já, það er nú helst að frétta að ég er komin með vinnu í vetur - ætla að halda áfram á sömu braut og færi mig aðeins upp á skaftið og stjórna aðeins stærra hóteli! Verð sumsé hótelstjóri á Barón frá og með 1 nóv - og sumsé fæ frí í október og er farin að telja niður dagana - trúið mér!

En já,  hef verið að djóka með það að ég verði kölluð barónessan...ha ha ha...

hvað meira get ég sagt ykkur? já, Bob hefur verið að vinna aukavinnu á Hálendinginum...í lækjargötunni - er annars bara að vinna við að halda bílum reykvíkingabúa hreinum! Er samt orðinn leiður á þessu þessi elska - lái honum ekki - við vinnum í að finna handa honum almennilega vinnu...es geht nicht!

en já - sumarkveðjur til ykkar allra - sendið nú smá sólarglætu til mín úr Reykjavíkinni..þið hafið ekki gott af þessu... x


Frí :)

ahhh

það er gott að vera í fríi þegar maður hefur unnið sér það inn! Fimmtudagurinn var "hectic" en mín náði að ljúka öllu í tíma og flaug í bæinn eins og plan A hljóðaði upp á!

Og þetta var þvílík góð tímasetning á þessu fríi mínu. Í fyrsta lagi er geggjað veður og það sem meira er að ég náði að hitta Jónu systur áður en hún flaug norður og við borðuðum morgunmat heima hjá Svövu með mömmu og pabba og fórum síðan í sund.

Síðan fórum við Bob í smá verslunarferð og versluðum sæng og kodda og RÚM! víííí! Eftir að hafa sofið á dýnu í næstum 5 ár þá loksins hef ég eignast rúm - og getiði trúað því að þetta er fyrsta rúmið sem að ég kaupi mér nýtt! Seinasta rúm sem ég átti fékk ég notað frá Bjössa (en hann hafði nú bara átt það í nokkra mánuði!) og þar á undan...já, ég bara man það ekki!

En já - fengum rúmið og rammann fyrir ca 55. þús - en við vorum aðeins of sein á ferðinni þannig að það náðist ekki að senda það í gær - þannig að við sofum á uppblásnu dýnunni....

Síðan fórum við á circus og sátum í sólinni ásamt Ásu og þaðan fórum við á Tívolí að borða og Íris kíkt aðeins á okkur - get mælt með þeim stað - mjög góður matur og fín þjónusta og ekki neitt brjálæðislega dýrt! Þaðan fórum við á Hressó en stoppuðum stutt - mín alveg uppgefin og við vorum komin heim fyrir miðnætti.

Í dag er planið að versla aðeins meir (föt á mína!) og fara aftur í sund og tjilla aðeins meir - og svo er helgin bara búin á morgun! Time flies when you are having fun!

 


Bingó!

hana nú! er með fullt hús af bingóóðum og trúaróðum ítölum. Þeir byrjuðu á því að halda bænastund og smá messu hérna í koníaksstofunni minni (eftir að ég hafði lagt blátt bann við að þau myndu halda þessa "messu" í matsalnum meðan annað fólk var að borða!) og svo borðuðu þeir fínan mat og síðan drógu þeir upp bingóspjöldin (og enn var fólk að borða!)! En jæja, þeir þegja á meðan konan er að lesa upp tölurnar - og það er nú gott!

er annars að fara í frí á morgun  - ef allt gengur upp lendi ég í rvk annað kvöld - ef eitthvað kemur upp á, þá fer ég líklegast ekki fyrr en á föstudagsmorgun! ... en já - búið að vera svo mikið að gera að ég hef ekki haft neinn tíma til að plana neitt....vil líka gera sem minnst - bara njóta tímans með Bob mínum...ahhh og já, jú...reyndar þarf ég að versla mér svartar buxur....og vantar líka skó...og að láta taka mynd af mér í debetkortið...og...dííí best að hætta núna...listinnn er endalaus!

Jæja - þá er bingóið búið - tími fyrir 30 maríubænir og svo að skella sér í háttinn...chao bella...


Belgar í morgunmat

 

en já, er að fæða 42 stykki frá Belgíu. Fólkið byrjaði að bíða eftir morgunmatnum korter yfir 7, sem annars byrjar klukkan 7,30. Mjög óþægilegt þar sem ekki er hægt að undirbúa morgunmatinn án þess að fólk sjái og opna svo dyr þegar hann er tilbúinn! En Við Anna vorum með allt klárt fyrir 7,30 - en það er fyndið hvernig allt virðist alltaf klárast á sama tima!

Annars búin að vera ágætisvika. Mikið að gera að venju, og þó svo að það sé rólegt og lítið að gera, þannig séð, á hótelinu, þá er alltaf yfirnóg að verkefnum sem bíða mín. Svona er þessi bissness...maður planar eitthvað, svo kemur eitthvað uppá, mistök í bókunum, þetta bilar, þetta vantar, þessi vara kom ekki, vitlaus vara kom blah blah...Hef eytt óhemjutíma í símanum að panta inn og koma mér inn í þessar pantanir! Tólið límt við eyrað á mér! Og svo er síminn byrjaður að hringja - fólk að spyrja um herbergi og allt milli himins og jarðar: hvernig er veðrið, sést til jökla? Hvernig er spáin? ertu með svefnpokapláss? Er tjaldstæði á höfn? Hvar eruð þið?  Og svo ég svari: þá er veðrið hérna yndislegt - mætti reyndar rigna smá því ég lét bera áburð á grasið!, og spáin er mjög góð og það sést vel til jökla, ég er ekki með svefnpokapláss og það er tjaldstæði á höfn og já, við erum rétt fyrir vestan Höfn! (nákvæmlega 14,8 km til Hafnar!).

Jóna systir útskrifaðist úr Glasgow University of Art í gær - hamingju óskir til hennar - hún fer að koma heim bráðum og mun vinna fyrir norðan - kemur kannski samt í sumar og hjálpar mér hér...sjáum til...

Magga systir átti afmæli í gær, hamingjuóskir til hennar.

jæja - maður á víst að hafa þessar bloggfærslur stuttar og laggóðar....so time for me to shut up!

knús á ykkur

 


stjörnuspá dagsins

HA ha ha... var að enda við að skrifa lista yfir það sem ég ætla að gera í dag og síðan las ég þetta á mbl.is

HrúturHrútur: Þú stendur þig ekkert endilega betur þótt þú undirbúir þig rosalega mikið. Stundum tekurðu þig bara á taugum eða eyðir allir orkunni. Spilaðu af fingrum fram.
Svona lítur listinn minn út núna:
Gera pöntunarlista
skrifa nýjan menu
Herbergjatékk
Morgunverðartékk
vinna í nafnalistum
bóna salinn!
En já, hæ hó jibbí jei! 17 Júní - 5 ár síðan ég var á íslandi á 17 júní og var að vinna þá - er svosem enginn skrúðgönguaðdáandi - bíð eftir að eignast börn og þá kannski tek ég þátt í hátíðahöldum! En íslenski fáninn kominn á morgunverðarborðið! Til hamingju Ísland (því ég fæddist hér!)
og til hamingju íslendingar!

bilaðir bílar og steikt egg

jæja

nýi kokkurinn kominn, líst bara vel á hann - skipulagður, eldar góðan mat og talar mikið og með ágætis húmor...so far so good!

Bob átti afmæli í gær og hélt upp á það með Unnari, Lindu og í góðra vina hópi þar - vona að hafi ræst úr afmælisdeginum hans. Hann er kominn með nýja vinnu við að þvo bíla og byrjar þar á mánudag Smile hey...beggars can´t be choosers... og já, regluleg vinna með reglulegum launum - hin var alltof óútreiknanleg þó hún væri vel borguð þegar vinna er í boði!

Annars það að frétta að hér kom gestur kl 4 í nótt - ég sef í öðru herbergi en þar sem dyrasíminn hringir og Anna reyndi að vekja mig en gat það ekki!! Ég svaf bara og svaf og svaf til 9 í morgun - hef ekki "sofið út" og svona lengi í margar vikur en var greinilega þörf á! Greyið konan sem var að tékka inn lenti í því að bíllinn hennar bilaði og þess vegna var hún svona sein - en spáið í því - ein að ferðast í ókunnu landi og var ekki einu sinni með síma (annars hefði hún hringt og látið vita að henni seinkaði!). Og svo var annar gestur hérna, einhver ríkur frakki í ferð um landið með einkagæd (kostar ca 110-120 þús á dag að vera með einkagæd!) og heimtaði steikt egg hérna í morgun. Staffið mitt sagði bara kurteisislega að það væri því miður ekki hægt, hún gæti ekki eldað þau, þá heimtaði hann að hún myndi VEKJA einhvern til að steikja handa honum egg. Hún reddaði sér með því að segja að kokkurinn byggi á höfn og væri með lykla o.s.frv... en svo sá hún eftir á að hann hafði hent eggjum á gólfið og já - var ferlega fúll að fá ekki eggin sín steiktu! Púff þessi VIP´s - bara vesen...i´m telling you guys!

En jæja - ég ætla að drekka aðeins meira kaffi og reyna að vakna almennilega til lífsins....


góðar fréttir og...ekki svo góðar fréttir

hey og hó

 ég er snillingur! er búin að finna nýjan kokk og hann kemur á svæðið á föstudagsmorgun! Er reyndar þýskur en með mikla reynslu... og já - er mjög jákvæð á þessar breytingar...nema hvað...og hér kemur að slæmu fréttunum - vegna þessa þá kemst ég ómögulega frá í frí um helgina eins og planað var - aumingja Bob, hann varð ekkert smá ógeðslega svekktur....og ég er rosalega svekkt líka og já var akkúrat að enda að tala við hann núna - lítið að gera í lönduninni þannig að hann hangir heima því hann á ekki pening or er pirraður yfir því að geta ekki byrjað að vinna sér inn peninga og já, var nú soldið langt niðri ...við héldum bæði að það yrði meiri vinna í boði en ef þetta er svona óstöðugt, þá er kannski best að hann finni sér nýja vinnu bara...spurning... einhverjar hugmyndir einhver?

en jæja...sit núna og bíð eftir að fólk fari að drulla sér í háttinn svo að ÉG geti farið í háttinn...lítill hópur í kvöld plús nokkrir a la carte þannig að ég tók að mér salinn...búin að hlaupa um eins bavíani og já örugglega misst 5 kg á hlaupunum...I WISH!

en já...reyni að skella mér í bæinn til Bobs og í smá frí í næstu viku, þegar ég er búin að koma kokkinum inn í hlutina og það allt helv vesen er komið á hreint...

svaka stuð eins og venjulega,,,

 

 


Nú vandast málið. Stopp.

Já, fljótt skipast veður í lofti! Stopp.

nú vantar mig 1 stykki kokk. Stopp. Má byrja næsta fimmtudag - takk. Stopp. Kemst líkegast ekki í frí í næstu viku. stopp. Árangur áfram. stopp. Ekkert stopp. Stopp. Kýs samt ekki framsóknarflokkinn stopp. Fannst þetta bara fyndið. Stopp.

stopp

Sigga Stopp.

 


Setið að sötri

nei nei...ekki ég! Ætlaði að fara snemma að sofa í dag en tvenn pör hafa hreiðrað um sig í sófanum (sem ég færði úr horninu og setti fyrir framan barinn svo hann væri meira áberandi og þar af leiðandi myndi kannski selja soldið meira - og það virkar!) og já, þau sitja þar og sötra rauðvínið og babla með sínu nefi (sem er held ég hollenska!) og hafa það gott...held nú ekki að þau fari í neitt sterkara en rauðvínið - við sjáum til! Það er nú svona - ég fer seinust að sofa og vakna oft fyrst! stuð stuð stuð

En já, fyrir ykkur sem ekki vita, þá er Bob sumsé búinn að fá vinnu við Löndun. Negravinna lýsti hann Ástmundur (úr skógaskóla!) starfinu  - og ég er ekki frá því að Bob sé sammála. Fyrsti dagurinn sumsé í dag og ég heyrði í honum um hádegið og þá var hann orðinn aumur. Hélt þetta samt út í 12 tíma, hjólaði sumsé í og úr vinnu (reyndar bara í mjóddina í bakaleiðinni, treysti sér ekki í brekkuna ægilegu á þessu hjóli  og tók strætó þaðan!) og þegar ég heyrði í honum um 8 leytið var hann að grilla sér pylsur og ætlaði í langt of slakandi bað! Alveg búinn á því þetta grey! Ég er nú ljóta kærastan að láta hann ganga í gegnum þetta allt saman einan! er með ferlegt samviskubit og sakna hans alveg hrylliega - var næstum betra þegar hann var úti - verra að vita af honum í 1x klst fjarlægð og ekki geta hitt hann er frekar ferlegt - fyrir utan það að ég er svo hrædd um að honum leiðist og verði með einhverja heimþrá - það getur nú hent alla!

En já - þetta er mikil líkamlegt erfiði og þó hann sé nú í ágætisformi, þá er þetta viðbrigði auðvitað og hann þarf að aðlagast þessu sem og öðru. Litla dúllan mín ...

En jæja - nóg komið í bili....


Ástkæra Ylhýra (með enskuslettum!)

Jæja, hef tekið þá ákvörðun að hætta að blogga á ensku sem átti nú að vera fyrir Bob og vini og vandamenn í London og voru þau  nú dugleg að kíkja á síðuna til að byrja með en virðist ekki hafa tíma til þess að fylgjast með og nú er Bob kominn þannig að það er engin þörf á ensku bloggi.

En já, mín vaknaði 6.45 í morgun því að hópurinn fékk að koma fyrr í morgunmat. Þetta voru þessir fínir ellismellir frá Kanada - allir rosa ánægðir nema eitt par sem var langt frá því að vera ánægt. Ofnarnir virkuðu ekki og þau héldu að þau myndu frjósa í hel (þeir virkuðu fínt og það var vel yfir 30 stiga hiti þegar ég fór inn á herbergið til að tékka), það var klóak lykt á herberginu (ég fór að athuga og fann enga lykt en spreyjaði samt herbergið) - það var engin baðsápa (full baðsápa en smá stífla þannig að ég gat lagað það á innan  við 1 mínútu) - það var hávaði frá viftunni (sem ég gat ekki lagað en ef að þú lokaðir baðherberginu þá heyrðist ekki svo mikið í henni!), sjónvarpið virkaði ekki (virkar ekki í allri byggingunni) og svo hafði gleymst að setja lítil handklæði á baðherbergið (af því að það er ekki til nóg af þeim þannig það var ekki til þegar herbergið var þrifið og svo gleymdist að setja þau inn á seinna  - er búin að tala við þernurnar útaf þessu - þetta er náttúrulega ekki gott!)

Oh well, maður spyr sig samt: óheppni að það var allt að í sama herberginu eða óvenju smámunasamt og "grumpy" fólk sem fann upp á að kvarta og kvabba yfir öllu???

Ekki alltaf hægt að gera öllum til geðs og samkvæmt þjónustukönnun frá öðrum í hópnum þá fáum við 5 stig af 5 og þegar þau kvöddu þá þökkuðu þau vel fyrir sig!

En jæja, hópurinn farinn - rólegt um helgina og næstu daga - en mín hefur auðvitað nóg að gera. Það er passað upp á að manni leiðist ekki hérna! :) Ætla að reyna samt að komast í sund á höfn og slappa af og losa um hnútana.

By the way - Við Bob er kominn með heimasíma 586 1815 (18. er minn afmælisdagur og Bob´s er 15 júní!) og hann er einnig með gemsa: 662 5427 - og hann er sumsé í Krummahólum 8 að láta sér leiðast þangað til hann byrjar í vinnunni á mánudag - endilega hringið í hann ef þið megið vera að!

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

All and Nothing

Höfundur

Sigga
Sigga
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Bækur

I recommend:

  • Philip Pullman: His Dark Materials Trilogy
    Great books! If you haven´t read them - your life is missing a great experince!
    *****

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband